Fimm í fjársjóðsleit á Fagurey
Georg, Júlli, Jonni og Anna ákveða að rannsaka bölvun sem er sögð hvíla á Fagurey en komast fljótlega að því að þau eru ekki ein á ferð. Leikstjóri: Tim Kirkby.

Breskar spennumyndir fyrir alla fjölskylduna um ævintýri fjögurra krakka og hundsins þeirra. Myndirnar eru lauslega byggðar á Fimm-bókunum eftir rithöfundinn Enid Blyton. Aðalhlutverk: Diaana Babnicova, Kit Rakusen, Flora Jacoby Richardson og Elliott Rose.