Orka án orkudrykkja
Í þessu myndbandi er fjallað um það sem þú getur gert til að fá orku - án orkudrykkja!
Veistu hvað gerist í hausnum á þér þegar þú drekkur orkudrykki? Horfðu á myndbandið til að komast að því og af hverju afreksfólk forgangsraðar svefni.

Orkudrykkir hafa á sér ákveðna glansmynd og í markaðssetningu er gefið í skyn að þeir auki snerpu, styrk og vitsmuni. Er eitthvað til í því? Hvað eru orkudrykkir og er allt í lagi fyrir unglinga að drekka þá? Í myndböndunum Draumur
í dós er fjallað um áhrif orkudrykkja á heilsu unglinga og leiðir gefnar til að auka orku, án orkudrykkja.