Á meðan ég man

Leyft öllum aldurshópum

1991-1995

Í þessum þætti er farið yfir árin 1991 til 1995. Hér sjáum við meðal annars frétt um geimfar sem spáð hafði verið að myndi lenda á Snæfellsjökli, umfjöllun um 50 ára lýðveldisafmælið 17. júní og hátíðarhöld á Þingvöllum og sjáum hljómsveitirnar Jet Black Joe, Ný dönsk, Savanna Tríó, Todmobile, Borgardætur, Dolli og Dengsi og Spoon taka lagið.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Á meðan ég man

Á meðan ég man er íslensk þáttaröð sem gerð var í tilefni af 80 ára afmæli Ríkisútvarpsins árið 2010. Í hverjum þætti er stiklað yfir fimm ára tímabil í sögu Sjónvarpsins frá árunum 1966 til 2005. Í þáttunum er fréttum, atriðum úr skemmtiþáttum, viðtalsbrotum og tónlist frá þessum tímabilum blandað saman. Inn í þessa upprifjun fléttast viðtöl við fólkið sem annaðhvort var áberandi á tímabilinu eða kom við sögu í fréttunum sem rifjaðar eru upp. Umsjónarmaður er Guðmundur Gunnarsson og dagskrárgerð er í höndum Sigurðar Jakobssonar.

Þættir

,