Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Margrét Helga Erlingsdóttir. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Það styttist í þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB á laugardag. Þetta er eitt af stærstu málum - ef ekki það stærsta - á ferli Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og formanns Viðreisnar. Þorgerður Katrín situr fyrir svörum í Kastljósi í kvöld.
Sagt hefur verið að þjóðin sé klofin í herðar niður vegna deilna um ESB. Við hittum hins vegar stjúpfeðga, sem eru virkir á sitt hvorum vængnum í kosningabaráttunni, en eru sammála um að vera ósammála.
Sigríður Hagalín Björnsdóttir og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Kjósendur velta fyrir sér kostum og göllum þess að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið, hver áhrifin gætu orðið á kjör almennings í landinu, lífsgæði, verðlag og húsnæðismál. Þá bárust þær fréttir í vikunni að yfirhershöfðingi NATO vilji fast herlið á Íslandi.
Gestir þáttarins eru Brynhildur Pétursdóttir framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna, Helga Rósa Másdóttir formaður Félags hjúkrunarfræðinga, hagfræðingarnir Gauti B. Eggertsson og Jón Helgi Egilsson, og Sóley Kaldal sérfræðingur í alþjóðlegum öryggismálum.
Umsjón með þættinum hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir.
Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 1993. Spyrill: Stefán Jón Hafstein. Dómari: Álfheiður Ingadóttir. Sigavörður: Sólveig Samúelsdóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Í þessum þætti mætast lið Verzlunarskóla Íslands og Fjölbrautaskólans við Ármúla. Lið Verzlunarskóla Íslands skipa Finnur Þór Birgisson, Haukur Eggertsson og Sigurður Kári Kristjánsson. Lið Fjölbrautaskólans við Ármúla skipa Birgir Guðmundsson, Hildur Björk Svavarsdóttir og Jón Már Halldórsson.
Ebba Guðný sýnir áhorfendum hversu auðvelt það getur verið að elda hollan og næringarríkan mat úr góðu hráefni. Matreiðsluþáttur fyrir alla fjölskylduna með skemmtilegu fræðsluívafi. Dagskrárgerð: Sævar Sigurðsson. Framleiðandi: Anna Vigdís Gísladóttir fyrir Saga Film.
Ebba undirbýr lautarferð og útbýr chiagraut með ávöxtum, hnetublöndu með þurrkuðum ávöxtum, kókoskúlur, kanilsnúða, heitt kakó og tómatsúpu. Gestir Ebbu í Guðmundalundi í Kópavogi eru Embla María Jóhannesdóttir, Hafliði Hafþórsson, Hrafnhildur Freyja Jóhannesdóttir, Jóhannes Páll Jóhannesson, Jóhannes Þór Ágústarson, Jón Sverrir Sigurðsson, Ragnhildur Lilja Ásgeirsdóttir og Sigríður Hanna Jóhannesdóttir.
Ferðaþættir í umsjón Brynhildar Ólafsdóttur og Róberts Marshall. Að þessu sinni fara þau hjónin með gönguhóp um stórbrotið fjalllendi heima og erlendis. Það reynir á líkama, sál og samheldni í ólíkum tegundum útivistar.
Hópur Íslendinga heldur í létta hlaupa- og gönguferð um stórbrotið fjalllendi Sviss. Farið er með lítinn farangur milli fjallaskála og leiðin liggur meðal annars undir hinum sögufræga Eigervegg, sem lengi hefur skipað sérstakan sess í sögu fjallamennsku.

Vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón og handrit: Ari Páll Karlsson og Embla Bachmann. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
Við höldum áfram að rifja upp sumarið og í dag verða erlendar fréttir í sviðsljósinu🌍
1. Spánn vann HM karla í fótbolta 2. Hitabylgjur á meginlandi Evrópu 3. Jarðskjálftar í Venesúela og Kólumbíu.
Íslenskir heimildarþættir. Viktoría Hermannsdóttir kynnist æskuslóðum viðmælenda sinna í ýmsum bæjum og hverfum. Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir. Framleiðsla: Pera.
Fótboltakappinn Hermann Hreiðarsson er Eyjapeyi fram í fingurgóma. Fyrir nokkrum árum flutti hann aftur til Vestmannaeyja. Viktoría Hermannsdóttir röltir með Hermanni um æskuslóðir hans.

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Margrét Helga Erlingsdóttir. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður við ESB fer fram á laugardag. Í þessum þætti og þættinum annaðkvöld kynnum við okkur sjónarmið fólks sem ætlar annars vegar að segja já og hins vegar nei við því að taka á ný upp aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Kastljós kastaði hlutkesti í votta viðurvist um hvora hliðina yrði fjallað í þessum þætti og niðurstaðan var NEIið. Við fjöllum um JÁið á morgun.

Heimildarþáttaröð frá BBC. Simon Reeve ferðast um skóga, firði og túndru Norðurlandanna til að komast að því hvað gerir samfélögin þar að þeim hamingjusömustu og jöfnustu í heimi.
Norskir heimildarþættir frá 2024. Hópur Norðmanna stefnir á að komast með nýstofnað landslið sitt í fótbolta á Heimsleika dvergvaxinna. Markmið liðsmanna er að vinna bug á fordómum í garð þeirra og sýna að hæðin sé engin hindrun þegar kemur að íþróttaiðkun. Undir stjórn þjálfarans Ole Martin Årst, fyrrverandi atvinnumanns í fótbolta, stefnir liðið á toppinn.
Dönsk glæpaþáttaröð frá 2026. Þegar lögreglunemi skýtur ungan mann við handtöku vakna upp spurningar um valdbeitingu og þjálfun lögreglunnar. Þrýstingur á nýjan skólastjóra lögregluskólans eykst og bæði nemendur og starfsfólk þurfa að horfast í augu við þá miklu ábyrgð sem fylgir því að klæðast einkennisbúningi lögreglunnar. Aðalhlutverk: Marco Ilsø, Clara Rosager og Lene Maria Christensen. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
Lögreglumaðurinn Andri Ólafsson snýr aftur í annarri þáttaröð þessara vinsælu íslensku spennuþátta. Reynt er að ráða iðnaðarráðherra af dögum á Austurvelli og Andra er falið að stýra rannsókn málsins sem leiðir hann á kunnugar slóðir norður á landi. Ýmis leyndarmál leynast í sveitunum í kring og þegar starfsmaður jarðvarmavirkjunar finnst myrtur er ljóst að málið er umfangsmeira en það virtist í fyrstu. Leikstjórn: Baltasar Kormákur, Börkur Sigþórsson, Ugla Hauksdóttir og Óskar Þór Axelsson. Aðalhlutverk: Ólafur Darri Ólafsson, Ilmur Kristjánsdóttir og Ingvar E. Sigurðsson. Framleiðsla: RVK Studios. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Pólskur verkamaður finnst myrtur í höfuðstöðvum virkjunarinnar á heiðinni og Víkingur er handtekinn, grunaður um verknaðinn. Halla Þórisdóttir er enn í bænum og heldur áfram sínum pólitísku vélráðum. En hugsanlega býr eitthvað fleira undir.
Fjórða og síðasta þáttaröðin um ítölsku vinkonurnar Elenu og Lilu. Þættirnir eru byggðir á Napólí-sögum rithöfundarins Elenu Ferrante, sem farið hafa sigurför um heiminn. Vinkonurnar eru á fullorðinsaldri og lifa ólíku lífi en vináttan heldur enn. Aðalhlutverk: Alba Rohrwacher, Irene Maiorino og Fabrizio Gifuni. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.