Ný íslensk heimildarþáttaröð í umsjón Ara Eldjárns um íslenskar kvikmyndir. Í hverjum þætti er ein sígild kvikmynd tekin fyrir. Skyggnst er á bak við tjöldin og áður óséð myndefni birt. Rætt er við leikstjóra, handritshöfunda, framleiðendur, leikara, búninga- og leikmyndahönnuði, kvikmyndastjóra, klippara og fleira fagfólk, sem ljóstra upp ýmsum leyndarmálum frá gerð myndanna.
Fjallað er um gerð sígildu gamanmyndarinnar Nýtt líf frá 1983. Meðal þeirra sem fram koma eru Eggert Þorleifsson, Karl Ágúst Úlfsson, Elva Ósk Ólafsdóttir, Þráinn Bertelsson, Ari Kristinsson og framleiðandinn Jón Hermannsson. Þátturinn er tileinkaður minningu Jóns.
Meistarakokkurinn Hrefna Sætran býður landsmönnum heim til sín á pallinn í Litla-Skerjafirði. Þar ætlar hún að grilla gómsæta rétti sem auðvelt er að útbúa. Nautakjöt, fiskur, lambakjöt, grænmeti, kjúklingur, svínakjöt og ávextir verða í aðalhlutverki í þessum sólríka og skemmtilega grillþætti.
Dagskrárgerð: Kristófer Dignus.
Framleiðandi: Stórveldið.

Matilda er metnaðarfullur námsmaður og vill standa sig vel í skólanum. Hana dreymir líka um gott félagslíf, að skemmta sér jafn mikið og vinsælu jafnaldrar hennar - en hvernig fer hún að því? Hún pantar klón af sér á dularfullri vefsíðu og þarf skyndilega að takast á við tvífara sem tekur yfir líf hennar.
Búningar og grímur gera allt enn ruglingslegra.
Hvað gerist þegar besta vinkonan byrjar að hanga með einhverjum öðrum? Saga um vináttu sem rofnar og breytist. Þáttaröðin er á sænsku með íslenskum texta.
Hvað ætlar Alexa að gera við myndbandið? Þetta verður verra en Ella getur ímyndað sér.
Bresk sjónvarpsþáttaröð úr heimi vísindaskáldskapar fyrir unglinga. Árið 1997 hurfu fjórir krakkar úr Silfruskógi. Tuttugu og þremur árum seinna ákveður strákur einn að komast að því hvað í raun og veru gerðist í skóginum þennan örlagaríka dag.
Fjögur ungmenni finna sérkennilegan hlut grafinn í Silfruskógi.

Samantekt frá leikjum dagsins á HM karla í fótbolta.

Breskur sakamálaþáttur um hinn slungna séra Brown sem er ekki bara kaþólskur prestur heldur leysir glæpsamleg mál á milli kirkjuathafna. Aðalhlutverk: Mark Williams.
Grínsketsaþættir þar sem samskipti, íslensk menning, samfélagsmiðlar og allt sem er mannlegt er skoðað í kómísku ljósi. Handrit og aðalhlutverk er í höndum Kanarí-hópsins, sem samanstendur af nýrri kynslóð grínista sem hafa gert það gott með leiksýningu og sjónvarpssketsum síðustu misseri. Leikstjórn: Guðmundur Einar. Framleiðsla: Lára Theódóra Kettler Kristjánsdóttir.

Leikir á HM karla í fótbolta.
Leikur Úrúgvæ og Spánar á HM karla í fótbolta.
Þættir sem fjalla um þjóðirnar sem taka þátt á HM karla í fótbolta. Við kynnumst leikmönnum, þjálfurum og þeim þjóðum sem keppa um heimsmeistaratitilinn á þessum stærsta viðburði vinsælustu íþróttagreinar veraldar.
Fjallað er um Króatíu, Bosníu og Hersegóvínu, Austurríki og Belgíu.

Leikir á HM karla í fótbolta.
Leikur Nýja-Sjálands og Belgíu á HM karla í fótbolta.

Samantekt frá leikjum dagsins á HM karla í fótbolta.
Þættir sem fjalla um þjóðirnar sem taka þátt á HM karla í fótbolta. Við kynnumst leikmönnum, þjálfurum og þeim þjóðum sem keppa um heimsmeistaratitilinn á þessum stærsta viðburði vinsælustu íþróttagreinar veraldar.
Fjallað er um Curaçao, Jórdaníu, Grænhöfðaeyjar og Úsbekistan.

Leikir á HM karla í fótbolta.
Leikur Grænhöfðaeyja og Sádi-Arabíu á HM karla í fótbolta.
Þættir sem fjalla um þjóðirnar sem taka þátt á HM karla í fótbolta. Við kynnumst leikmönnum, þjálfurum og þeim þjóðum sem keppa um heimsmeistaratitilinn á þessum stærsta viðburði vinsælustu íþróttagreinar veraldar.
Fjallað er um Marokkó, Senegal, Egyptaland og Fílabeinsströndina.

Leikir á HM karla í fótbolta.
Leikur Egyptalands og Íran á HM karla í fótbolta.