
Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Flóra er níu ára og finnur gat í limgerðinu úti í garði. Hún skríður í gegn og er skyndilega stödd í skóginum endalausa – galdraheimi þar sem allt getur gerst. Þar ráfa um skrítnar og stórkostlegar verur. Þær lenda í ýmiss konar vandræðum og enginn getur hjálpað þeim – nema kannski Flóra sjálf?
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Karla er 8 ára kjúklingur, sem hefur það að markmiði að halda öllum ánægðum, svo lengi sem það kemur ekki niður á lífi hennar. Hún elskar skólann sinn og alla vini sína. Hún leggur hart að sér til að þóknast öllum, en stundum ganga hlutirnir ekki alveg eins og áætlað var. Í þessum þáttum eru félagsleg samskipti og tilfinningar þeim tengd könnuð út frá heimi krakkanna. Hvað er rétt og hvað er rangt? Getur maður átt fleiri en einn besta vin?
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Elsti sjónvarpsþáttur landsins snýr aftur með ný ævintýri!
Áróra heldur áfram að kanna heiminn og takast á við ný verkefni. Þegar Máni og fleiri vinir flytja burt tekur nýr kafli við og Áróra kynnist nýjum krökkum í sumarbúðunum. Með Loft og Sjón sér við hlið uppgötvar hún að ný ævintýri bíða alltaf handan við hornið.
Húgó gerist umhverfissóði en Bergrisinn kennir honum að hugsa betur um náttúruna. Saman heimsækja þeir krakkana í sumarbúðunum, þar sem Bergrisinn lærir Pógóbrennó og krakkarnir læra að týna rusl.
- Dagskrárliðurinn er textaður
Beinar útsendingar frá Skrekk, hæfileikakeppni grunnskólanna í Reykjavík. Kynnar: Anna Sigrún Davíðsdóttir og Daníel Óskar Jóhannesson.
Bein útsending frá úrslitum hæfileikakeppninnar Skrekks 2026 í Borgarleikhúsi þar sem grunnskólanemar Reykjavíkur keppa. Dagskrágerð Þuríður Davíðsdóttir. Stjórn útsendingar Sturla Holm.
Skólarnir sem keppa er
Sæmundarskóli
Dalskóli
Árbæjarskóli
Hlíðaskóli
Breiðholtsskóli
Norðlingaskóli
Langholtsskóli
Klébergsskóli
- Endursýnt
Spennandi spurningaþáttur í beinni útsendingu þar sem baggalúturinn Guðmundur Pálsson og sjónvarpskonan Sigrún Ósk Kristjánsdóttir halda um stjórnartaumana. Fulltrúar bæjarfélaga um allt land spreyta sig á spurningum, glíma við heilabrot og leysa ýmsar þrautir. Hvaða lið stendur uppi sem landsmeistari? Stjórn útsendingar: Sturla Skúlason.
Akranes mætir Selfossi. Keppendur frá Akranesi eru Eva Laufey Kjaran, Alexander Aron Guðjónsson og Bryndís Böðvarsdóttir. Keppendur frá Selfossi eru Katrín Aagestad Gunnarsdóttir, Grímur Hergeirsson og Páll Óli Ólason
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Þrettánda þáttaröð breska myndaflokksins Ljósmóðurinnar, sem er byggður á sannsögulegum heimildum um ljósmæður og skjólstæðinga þeirra í fátækrahverfi í austurborg London á sjöunda áratugnum. Meðal leikenda eru Vanessa Redgrave, Laura Main, Jenny Agutter og Stephen McGann.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.
Einn mesti metsöluhöfundur heims, Lee Child, er gestur í Kilju vikunnar. Hann hefur skrifað fjölda bóka um hetjuna Jack Reacher og margar þeirrra hafa verið þýddar á íslensku. Bækurnar hafa líka verið kvikmyndaðar - tvær með Tom Cruise í aðalhlutverki. Lee Child kom hingað á Iceland Noir hátíðina í síðustu viku. Steinunn Sigurðardóttir ræðir nýja skáldsögu sína sem nefnist Veisla þrjú og Bragi Páll segir okkur frá bókinni Íslensk óhamingja. Halla Oddný Magnússdótir flytur okkur kvæði úr bók sinni Litla bróður og segir frá tilurð hennar. Við hittum Sigmund Erni Rúnarsson norður á Akureyri en hann sendir frá sér Barnabók sem inniheldur minningar frá æsku hans í höfuðstað Norðurlands. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um Tengdason Íslands eftir Auði Övu Ólafsdóttur. Undir fögru skinni eftir Brynju Hjálmsdóttur og Fyrsta skiptið eftir Elías Rúna.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Listræn heimildarmynd frá 2021 byggð á ævisögu hinnar mexíkósku Ednu Lupitu. Edna mætir innri djöflum sínum með því að sviðsetja atburði úr fortíð sinni með hjálp atvinnuleikara. Með fyrirgefningu og sjálfsást að leiðarljósi dregur hún erfiðar minningar fram í dagsljósið og rannsakar eigin hugarfylgsni, ævilanga baráttu við geðsjúkdóma og sjálfsvígshugsanir. Ekki einleikið býður áhorfendum að fara með Ednu í tilfinningalegt ferðalag þar sem hún uppgötvar mátt leiklistarinnar í leit sinni að andlegum bata. Leikarar: Edna Lupita Mastache Gomez, Sólveig Guðmundsdóttir og Valur Freyr Einarsson. Leikstjórn: Ásthildur Kjartansdóttir og Anna Þóra Steinþórsdóttir. Framleiðsla: Rebella filmworks og Klipp.
Ef þú upplifir vanlíðan og þarft einhvern að tala við, hafðu samband við Hjálparsíma Rauða krossins 1717, netspjall 1717.is eða Píeta samtökin í síma: 552 3318.
Fyrir stuðning í sorg hafið samband við Sorgarmiðstöð í síma 551 4141 eða sorgarmidstod@sorgarmidstod.is
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Heimildarþáttaröð um sögu hljóðversins Hljóðrita sem var stofnað árið 1975 og varð fljótt að einu áhrifamesta upptökuveri Íslands. Í hálfa öld hefur Hljóðriti verið vettvangur fyrir breiða flóru tónlistarmanna, en nýjum tímum fylgja nýjar áskoranir. Leikstjóri: Árni Þór Jónsson. Framleiðsla: Republik.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Þáttur í tilefni af degi íslenskrar tungu. Barnamenningarverkefnið List fyrir alla býður unglingum í grunnskólum landsins að semja lög og texta í samstarfi við íslenskt listafólk. Í ár býðst þátttakendum að vinna með Króla, Sölku Sól, Hreimi, Braga Valdimari og Vigni Snæ. Verkefninu Málæði er ætlað að hvetja ungt fólk til að tjá sig á íslensku í tali og tónum. Kynnar: Hólmfríður Hafliðadóttir og Killian Gunnlaugur E. Briansson.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt

Elsti sjónvarpsþáttur landsins snýr aftur með ný ævintýri!
Áróra heldur áfram að kanna heiminn og takast á við ný verkefni. Þegar Máni og fleiri vinir flytja burt tekur nýr kafli við og Áróra kynnist nýjum krökkum í sumarbúðunum. Með Loft og Sjón sér við hlið uppgötvar hún að ný ævintýri bíða alltaf handan við hornið.
Húgó gerist umhverfissóði en Bergrisinn kennir honum að hugsa betur um náttúruna. Saman heimsækja þeir krakkana í sumarbúðunum, þar sem Bergrisinn lærir Pógóbrennó og krakkarnir læra að týna rusl.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Siggi Gunnars stýrir lifandi þætti um dægurmenningu og tekur stöðuna á því sem við horfum á, hlustum á og tölum um. Góðir gestir, skoðanir, húmor og leikgleði í fyrirrúmi. Stjórn upptöku: Þórunn Guðjónsdóttir.
Um fátt hefur verið meira rætt undanfarið en heimildarmyndina You Can See Everything sem verður frumsýnd hér á landi í kvöld, 19. nóvember. Myndin segir frá Elizabeth Holmes, einni alræmdustu viðskiptakonu Bandaríkjanna sl. ár. Brynja Hjálmsdóttir og Gunnar Hansson segja frá myndinni og rýna í hana.
Svo er það GTA 6 sem er dýrasti tölvuleikur, og jafnvel afþreyingarvara, í sögunni. Hvað gerir þennan tölvuleik svona merkilegan og af hverju hefur hans verið beðið í heilan áratug? Við komumst að kjarna málsins.
Tómas Arnar Þorláksson og Elísabet Inga Sigurðardóttir hafa vakið athygli fyrir vaska framgöngu á sjónvarpsstöðinni SÝN og á Vísi.is. Tómas fyrir skemmtilega þætti um fréttir vikunnar og Elísabet fyrir beinskeytt viðtöl við stjórnmálamenn. Þau koma í spjall, meðmæli og spurningakeppni undir lok þáttar.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt

Íslensk tónlistarmyndbönd.
- Endursýnt

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Festast í ofbeldissambandi
- Dagskrárliðurinn er textaður

Helstu íþróttafréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Veðurfréttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður sjálfvirkt

Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk í bæjum og sveitum og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Hafsteinn Vilhelmsson, Þórdís Claessen og Amanda Guðrún Bjarnadóttir. Dagskrárgerð: Jóhannes Jónsson, Björgvin Kolbeinsson, Benedikt Nikulás Anes Ketilsson, Adelina Antal og Hjalti Stefánsson.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Viðtalsþáttur þar sem Viktoría Hermannsdóttir spjallar við áhugavert fólk á einlægum nótum og fær að heyra alls konar sögur. Dagskrárgerð: Fannar Scheving Edwardsson og Viktoría Hermannsdóttir.
Innanhúshönnuðurinn og fyrrum flugþjónninn Andrés James Andrésson vatt kvæði sínu í kross fyrir tveimur árum og gerðist útfararstjóri. Hann segist fyrst hafa byrjað að lifa lífinu lifandi eftir að hann fór að vinna í kringum dauðann alla daga. Við kynnumst áhugaverðri sögu og lífssýn Andrésar James í þættinum.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Önnur þáttaröð leikinna íslenskra þátta. Karen hefur fengið sig fullsadda af Tinder og leitinni að hinni einu sönnu ást. Hún ákveður að segja skilið við stefnumótabransann og læra frekar að elska sjálfa sig en klisjan um að setja sjálfa sig í fyrsta sæti reynist flóknari en sýndist í fyrstu. Aðalhlutverk: Nanna Kristín Magnúsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson. Leikstjóri: Nanna Kristín Magnúsdóttir. Framleiðsla: Cubs Production og Vintage Pictures. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 14 ára.
Undir venjulegum kringumstæðum ætti skírnarveisla að vera gleðistund en Karen reynist undirbúningurinn afar flókinn. Þennan dag fer fókusinn á alla aðra. Ræður Karen við allt þetta áreiti?
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi

Sænsk leikin þáttaröð frá 2026 eftir Brynju Björk Garðarsdóttur. Banvænn svefnleysisfaraldur herjar á Stokkhólm og setur samfélagið á hliðina. Íbúar borgarinnar neyðast til að takast á við nýjan og ógnvænlegan veruleika. Leikstjóri: Henrik Georgsson. Aðalhlutverk: Jonas Karlsson, Aliette Opheim og Gizem Erdogan. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi

Spænsk verðlaunamynd frá 2022 í leikstjórn Cörlu Simón. Líf bændafjölskyldu í litlu þorpi í Katalóníu breytist þegar eigandi landsins deyr og sala landsins er yfirvofandi. Aðalhlutverk: Josep Abad, Jordi Pujol Dolcet og Anna Otin. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Festast í ofbeldissambandi