
Útsendingar frá Vetrarólympíumóti fatlaðra í Mílanó og Cortina á Ítalíu.
Keppni í stórsvigi karla á Vetrarólympíumóti fatlaðra í Mílanó og Cortina á Ítalíu.

Bein útsending frá útför Davíðs Oddssonar sem fer fram í Hallgrímskirkju.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Sýn og Síminn eru í viðræðum um að Síminn kaupi nær allan fjölmiðlahluta Sýnar, þar á meðal Bylgjuna og Vísi. Sjónvarpshlutinn verður eftir en óvíst er um afdrif kvöldfréttatíma Sýnar. Hvað þýðir þetta fyrir neytendur og fjölmiðlaumhverfið á Íslandi? Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands, og Trausti Hafliðason, ritstjóri Viðskiptablaðsins fara yfir stöðuna.
Það er ekkert bannað og leikgleðin er í fyrirrúmi í tónlistarskólanum Tónræktinni á Akureyri. Þar eru nemar á öllum aldri og öllu litrófi mannlífsins. Við fórum í heimsókn.
Myndirðu vilja tala við látna ástvini með aðstoð gervigreindar? Um það fjallar leikritið Dead Air eftir leikkonuna og leikskáldið Álfrúnu Rose.

Matgæðingarnir og bræðurnir Adam og James Price ferðast um Bretland og töfra fram kræsingar sem eru vinsælar þar í landi.
Spurningakeppni framhaldsskólanna. Spurningahöfundar og dómarar eru Arnar Gunnarsson, Sigurlaugur Ingólfsson og Vilhjálmur Bragason. Spyrill er Helga Margrét Höskuldsdóttir. Stjórn útsendingar: Sturla Holm Skúlason.
Menntaskólinn við Hamrahlíð mætir Menntaskólanum í Reykjavík. Keppendur frá Menntaskólanum við Hamrahlíð: Nína Sólveig Svavarsdóttir, Brynjar Bragi Einarsson og Magnús Matthiasson. Keppendur frá Menntaskólanum í Reykjavík: Hulda Filippía Andradóttir, Dóróthea Margrét Jakobsdóttir og Davíð Friðriksson Magnus.

Stuttir þættir þar sem áhorfendur fá ráð um hvernig hægt er að endurnýta gamla hluti og gæða þá nýju lífi.


Finnlands-sænskir þættir þar sem krakkar segja frá áhugamálum sínum.
Fylgstu með hugrökkum krökkum breytast í smáspæjara og takast á við fjölbreytt verkefni og ráðgátur í Krimmaborg. Með hjálp frá Spæjara X og Ninjo elta þau útsmogna skúrka og læra að vinna saman á skemmtilegan og spennandi hátt. Serían er með íslenskum texta.
Sænskir þættir sem fjalla um ævintýri sem eiga sér stað í sumarbúðum í Svíþjóð. Þar eru foringjarnir ekki alveg eins og fólk er flest og forvitin börn lenda í fjörugum aðstæðum, sem innihalda meðal annars boga, brjálaða geitunga og bjarnargildrur!

Fróðlegir danskir þættir þar sem þáttastjórnendur rannsaka matinn sem við borðum dags daglega.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.
Norsk leikin þáttaröð frá 2025. Þegar Emma kemst að því að hún er erfingi eins mesta auðkýfings í Noregi gjörbreytist líf hennar á einum degi. Með í pakkanum fylgja þó fjögur hálfsystkini sem eru ekki jafn ánægð með að faðir þeirra hafi bætt Emmu á erfðaskrána í laumi. Aðalhlutverk: Vivild Falk Berg, Henriette Steenstrup, Nicolai Cleve Broch, Helle Ryg Eia og Kristin Grue.

Gísli Marteinn tekur á móti góðum gestum á föstudagskvöldum í vetur og fer með þeim yfir helstu atburði vikunnar í stjórnmálum, menningu og mannlífi. Persónur og leikendur koma í spjall og brakandi fersk tónlistaratriði koma landsmönnum í helgarstemninguna. Stjórn útsendingar: Ragnar Eyþórsson.
Nýir breskir spennuþættir. Sherlock Holmes rannsakar alþjóðlegt glæpasamsæri og nýtur liðsinnis Ameliu, ungrar bandarískrar konu sem leitar bæði að föður sínum og morðingja móður sinnar. Aðalhlutverk: David Thewlis, Blu Hunt og Ardal O‘Hanlon.

Rómantískt drama frá 1995 með Nicolas Cage í aðalhlutverki. Atvinnulaus og drykkfelldur handritshöfundur fer til Las Vegas til að drekka sig í hel. Þar hittir hann vændiskonuna Seru og með þeim tekst óvenjulegur vinskapur. Aðalhlutverk: Nicolas Cage, Elisabeth Shue og Julian Sands. Leikstjóri: Mike Figgis. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.

Útsendingar frá Vetrarólympíumóti fatlaðra í Mílanó og Cortina á Ítalíu.
Keppni í stórsvigi karla á Vetrarólympíumóti fatlaðra í Mílanó og Cortina á Ítalíu.

Útsendingar frá Vetrarólympíumóti fatlaðra í Mílanó og Cortina á Ítalíu.
Undanúrslit í íshokkí á Vetrarólympíumóti fatlaðra í Mílanó og Cortina á Ítalíu.

Leikir í bikarkeppninni í blaki.
Leikur Völsungs/Eflingar og Aftureldingar í undanúrslitum karla í blaki.

Leikir í bikarkeppninni í blaki.
Leikur Hamars og Þróttar Fjarðabyggð í undanúrslitum karla í blaki.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.