
Teiknimyndaþættir fyrir börn byggðir á samnefndri breskri barnabók frá árinu 1994 eftir Sam McBratney, með myndskreytingum eftir Anitu Jeram. Bókin hefur verið gefin út á yfir 53 tungumálum og selst í yfir 28 milljónum eintaka.
Vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
Þegar afi ykkar er búin að þjálfa ykkur sem skrímslaveiðimenn, þá er ekkert annað í stöðunni en að veiða öll skrímslin! Það er þó eitt vandamál, krakkarnir elska skrímslin og vilja helst bara bjarga þeim. Það geta þau gert á meðan afi blundar, eða hvað?
Elías er ungur og áhugasamur björgunarbátur. Hann er ósvífinn, fjörugur og mikils metinn í heimabæ sínum. Vinir Elíasar skipta honum öllu máli og leggur hann í hvaða ævintýri sem er til þess að bjarga vinum sínum úr ógöngum.
Gamansamir þættir um strútapabbann Edda og áttburana hans. Eddi strútapabbi er fullkomnunarsinni og reynir að gera allt sem í hans valdi stendur til að vernda áttburana sína. Hann á fullt í fangi með það, enda eru ævintýrin hjá stórri fjölskyldu mörg og ímyndunaraflið mikið.
Eddi strútapabbi er að leika við börnin sín á ströndinni og finnur fjarstýringu sem getur stjórnar tímanum! Hann skemmtir sér konunglega þangað til að fjarstýringinn eyðileggst. Hann er dauðhræddur um að börnin festist í fortíðinni og verður að laga fjarstýringuna og það strax!
Karla er 8 ára kjúklingur, sem hefur það að markmiði að halda öllum ánægðum, svo lengi sem það kemur ekki niður á lífi hennar. Hún elskar skólann sinn og alla vini sína. Hún leggur hart að sér til að þóknast öllum, en stundum ganga hlutirnir ekki alveg eins og áætlað var. Í þessum þáttum eru félagsleg samskipti og tilfinningar þeim tengd könnuð út frá heimi krakkanna. Hvað er rétt og hvað er rangt? Getur maður átt fleiri en einn besta vin?
Teiknimyndaþættir um Lóu sem er 12 ára og býr með mömmu sinni í stórborg. Lóu finnst hún ekki lengur vera barn og ekki alveg vera unglingur ennþá og reynir að takast á við allar þær tilfinningar sem vakna þegar unglingsárin eru að hefjast.
Loft hefur tekið jarðormana í sátt og kynnist nú ævintýralegri tilvist þeirra í gegnum sjónaukann sinn og endurspeglar sjálft sig í þeim.
Aumingja Sjón fær tak í hálsinn og Loft gerir allt í sínu valdi til að láta henni líða betur. Á meðan setur Sunna á svið hæfileikakeppni með krökkunum.

Beinar útsendingar frá EM í fimleikum.
Úrslit á áhöldum á EM í fimleikum.
Íslensk heimildarmynd um eldstöðina Kötlu, en þann 12. október 2018 voru hundrað ár frá því hún gaus síðast. Katla er hættulegasta eldfjall landsins og allt fram til dagsins í dag hafa heimamenn, almannavarnir, lögregla, björgunarsveitir og fleiri gert ráðstafanir um hvernig bregðast skuli við, gjósi Katla. Rætt er við heimamenn og viðbragðsaðila um hættur samfara Kötlugosi og talað við vísindamenn um Kötlu og Kötluvá. Dagskrárgerð: Lára Ómarsdóttir og Einar Rafnsson.
Sænskir heimildarþættir frá 2022. Eftir að Ingvar Kamprad, stofnandi IKEA, lést árið 2018, arfleiddi hann Norrland í Svíþjóð fúlgu fjár, en ekki Smálönd þar sem hann fæddist. Ákvörðunin vakti mikla undrun auk þess sem skiptar skoðanir voru um hvernig ætti að nota peningana.

Stuttmyndir skrifaðar af krökkum og framleiddar af KrakkaRÚV.
Höfundur: Sigrún Æsa Pétursdóttir. Leikarar: Benedikta Björk Þrastardóttir, Salka Björnsdóttir, Konni Gotta, Friðjón Ingi Sigurjónsson, Linda Kristín Ragnarsdóttir og Vilborg Guðmundsdóttir.
Húsálfurinn Bolli, sem býr á skrifborði hins 11 ára gamla Bjarma, fær óvæntan herbergisfélaga þegar skólaálfurinn Bjalla smyglar sér heim í pennaveskinu. Bolli og Bjalla ákveða að búa til skemmtilegasta sjónvarpsþátt veraldar: Stundina okkar. Í þættinum eru það krakkarnir sem slá í gegn, hvort sem það er í spurningakeppninni Frímó, við bakstur eða með ofursvala bílskúrsbandinu Stundin rokkar.
Í þessum þætti búa Bolli og Bjalla til nýjan þáttalið þar sem allir eru ósammála. Nýja bílskúrs hljómsveitin í Stundinni rokkar fjallar um ábreiður og flytja fyrir okkur ábreiðu af Húsavík og liðin Bollarnir og Bláu risaeðlurnar mætast í Frímó.
Fjórir krakkar í rokkhljómsveit æfa þekkt íslenskt rokklag og semja eigið lag. Í leiðinni fræðumst við um hljóðfærin í hljómsveitinni og rokktónlistarsöguna.
Krakkarnir æfa og flytja lagið „Inní mér syngur vitleysingur“ með Sigur Rós, ásamt því að fjalla um frægar íslenskar hljómsveitir í útlöndum. Þá kynnumst við honum Hilmi Þór gítarleikara betur og hann segir okkur meðal annars frá hinni hljómsveitinni sinni. Hljómsveitarmeðlimir: Aldís María Sigursveinsdóttir, Fatíma Rós Joof, Hilmir Þór Snæland Hafsteinsson og Sigurður Ingvar Þórisson. Saxófón leikari: Birkir Blær Ingólfsson. Tónlistarstjóri: Sigurður Ingi Einarsson.
Stutt umfjöllun Sumarlandans sem var á flakki sumarið 2021 og hitti landann fyrir í sínu náttúrulega umhverfi, uppi á fjöllum, úti í garði, inni í skógi og allt um kring. Umsjónarmenn: Gísli Einarsson, Guðríður Helgadóttir, Hafsteinn Vilhelmsson, Helga Margrét Höskuldsdóttir, Þórhildur Þorkelsdóttir og fleiri.
Gamanmynd frá 2019 fyrir alla fjölskylduna. Geimvera með ótrúlega ofurkrafta lendir nálægt sveitabænum þar sem hrúturinn Hreinn og félagar hans búa og þeir leggjast á eitt við að hjálpa henni að komast aftur heim áður en yfirvöld ná til hennar.
Kanadísk kvikmynd frá 2020 í leikstjórn Philippe Falardeau. Myndin er byggð á æviminningum rithöfundarins Joönnu Rakoff. Árið 1965 ræður Joanna sig til starfa hjá umboðsskrifstofu í New York þar sem hún fær það hlutverk að svara aðdáandabréfum rithöfundarins J. D. Salinger. Aðalhlutverk: Margaret Qualley, Sigourney Weaver og Douglas Booth.

Bandarísk spennumynd frá 2018. Stephanie, sem er einstæð móðir, kynnist hinni dularfullu Emily í gegnum syni þeirra beggja sem ganga í sama skóla. Með tímanum verða þær vinkonur og þegar Emily hverfur skyndilega sporlaust ákveður Stephanie að rannsaka málið upp á eigin spýtur. Leikstjóri: Paul Feig. Aðalhlutverk: Anna Kendrick, Blake Lively og Henry Golding. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Breskir spennuþættir. Raðmorðingi hlutar fórnarlömb sín niður og notar líkamspartana til að búa til eins konar mennska tuskubrúðu. Sveit rannsóknarlögreglumanna eltist við hann en illvirkjanum tekst alltaf að vera skrefi á undan. Málið vandast enn frekar þegar listi yfir næstu fórnarlömb birtist og einn lögreglumaðurinn er á honum. Aðalhlutverk: Lucy Hale, Henry Lloyd-Hughes og Thalissa Teixeira. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.