Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Viðtal við Kristrúnu Frostadóttur frá Allsherjarþingi SÞ í New York, viðtal við Ölmu Möller um rekstur SÁÁ og umræða umn nýjan milliríkjasamning Grænlands, Bandaríkjanna og Danmerkur.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 1996. Spyrill: Davíð Þór Jónsson. Dómari: Helgi Ólafsson. Stigavörður: Sólveig Samúelsdóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Í þessum þætti mætast lið Menntaskólans við Sund og Flensborgarskólans. Lið Menntaskólans við Sund skipa Eyjólfur Magnússon, Gestur Óskar Magnússon og Oddbergur Eiríksson. Lið Flensborgarskólans skipa Magnea Erna Auðunsdóttir, Guðmundur Sverrir Jónsson og Orri Þórðarson.
- Endursýnt
Í safni sjónvarpsins er að finna efni allt frá stofnun þess en sjónvarpið hefur fylgt þjóðinni í sextíu ár. Helga Lára Þorsteinsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir demba sér á kaf í safnkostinn og sýna þjóðinni valda gullmola. Áhugaverð, forvitnileg og óvenjuleg brot úr sjónvarpssögunni sem sum hafa nýlega verið gerð aðgengileg. Dagskrárgerð: Ragnheiður Thorsteinsson.
Vissir þú að apar voru eitt sinn gæludýr á Íslandi og að hundahald var bannað í Reykjavík fram á níunda áratuginn? Helga Lára Þorsteinsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir skoða myndefni tengt dýrum úr safni sjónvarpsins.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt

Þessar þáttaraðir eru áhorfendum að góðu kunnar, enda eru þættirnir bæði afar fræðandi og skemmtilegir en að þessu sinni fræðumst við um jörðina. Þáttunum er ætlað að hvetja yngri áhorfendur til að verða ábyrgir borgarar og hjálpa þeim að skilja umhverfi sitt, svo þeir geti lagt sitt af mörkum til að vernda það.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Tveir strákar hjóla um landið og hafa meðferðis forláta tölvu sem segir þeim allt um þá staði sem þeir koma á. Leikið efni frá 2018.
Handrit: Íris Stefanía Skúladóttir.
Hlutverk ferðalanga: Jóhann Ingi Skúlason og Emil Örn Kristjánsson.
Rödd tölvu: Íris Stefanía Skúladóttir.
- Endursýnt
Fjórir krakkar eiga að vinna skólaverkefni um víkingatímabilið á Þjóðminjasafninu en leysa í staðinn ævafornan víking úr álögum. Krakkarnir þurfa að leysa sérstakar víkingaþrautir til að hjálpa víkingnum að komast til Valhallar - þangað sem fallnar víkingahetjur fara eftir að hafa dáið í bardaga.
Í æsispennandi lokaþætti af Víkingaþrautinni þurfa krakkarnir að spila hinn forna leik víkinganna - hnefatafl - við sjálfan Loka. Víkingurinn óttast að hann muni aldrei komast til Valhallar.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Heimildarþættir þar sem saga íslenskrar hönnunar er rakin, allt frá fyrstu brautryðjendum til yngri kynslóða. Í hverjum þætti er sjónum beint að áhrifamiklum hönnuðum og verkum þeirra, samhengi þeirra við samtímann og arfleifð. Dagskrárgerð: Jakob Halldórsson.
Fjallað er um Halldór Hjálmarsson, innanhússarkitekt, sem mótaði fagurfræði og fagvitund greinarinnar.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að allt fari í bál og brand á vinnumarkaði? Þær Ásta Fjeldsted forstjóri Festi og Halla Gunnarsdóttir formaður VR glímdu við þessa spurningu í Kastljósi í kvöld. Einnig var rætt við Elizu Reid, fyrrverandi forsetafrú, um samband Kanada og Bandaríkjanna í skugga tollastríðs. Þá litum við í heimsókn til karla í skúrum í Hafnarfirði.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Bein útsending
Ferðaþættir í umsjón Brynhildar Ólafsdóttur og Róberts Marshall. Að þessu sinni fara þau hjónin með gönguhóp um stórbrotið fjalllendi heima og erlendis. Það reynir á líkama, sál og samheldni í ólíkum tegundum útivistar.
Hópur Íslendinga tekst á við stærstu áskorun þáttaraðarinnar: að þvera sjálfan Grænlandsjökul. Ferðin, sem þegar er talin ein sú erfiðasta sem hægt er að leggja upp í á norðurslóðum, verður að grimmri baráttu þegar hópurinn lendir í einhverjum verstu aðstæðum sem orðið hafa á jöklinum í marga áratugi.
- Dagskrárliðurinn er textaður
Sænsk þáttaröð frá 2023. Marie Olsson Nylander heldur í ævintýraferð með systur sinni þar sem þær ferðast frá Svíþjóð niður til Sikileyjar. Á leiðinni stoppa þær á ýmsum stöðum í leit að forngripum fyrir heimili Marie á Sikiley.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Norsk leikin þáttaröð frá 2026. Sérnámslæknarnir Petra, Kissy, Samuel og Joakim fóta sig í nýju starfi á sjúkrahúsi. Saman takast þau á við langa og krefjandi vinnudaga sem tengir þau órjúfanlegum böndum. Aðalhlutverk: Elpida Stojcevska, Sofia Tjelta og Deniz Kaya. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Íslensk þáttaröð um Karen, 38 ára hjónabandsráðgjafa og þriggja barna móður, sem stendur frammi fyrir erfiðum ákvörðunum þegar hún kemst að því að eiginmaður hennar hefur verið henni ótrúr. Hún á erfitt með að fyrirgefa eiginmanninum en það versta sem hún getur hugsað sér eru svokallaðar pabbahelgar. Leikstjórn: Nanna Kristín Magnúsdóttir og Marteinn Þórsson. Aðalhlutverk: Nanna Kristín Magnúsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson. Framleiðsla: Zik Zak kvikmyndir og Ungar kvikmyndafélag. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
Karen ákveður að kalla konuna sem setti líf hennar á hvolf á sinn fund en situr í kjölfarið eftir enn ringlaðri og óöruggari með sjálfa sig.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Leikin þáttaröð frá 2024 byggð á samnefndri skáldsögu eftir Alexandre Dumas. Sjómaðurinn Edmond Dantè er svikinn af þremur mönnum og ranglega fangelsaður á eyju við strendur Marseille. Mörgum árum síðar tekst honum að flýja fangelsið og leitar uppi fjársjóð sem samfangi hans sagði honum frá. Hann hefur nýtt líf undir dulnefninu greifinn af Monte Cristo og er staðráðinn í að ná fram hefndum á mönnunum sem sviku hann. Aðalhlutverk: Sam Claflin, Mikkel Boe Følsgaard og Ana Girardot. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Þriðja þáttaröð þessara pólsku spennuþátta um menntaskólakennarann Pawel Zawadzki. Þegar nemandi deyr í siglingu á vegnum skólans beinast spjótin að skipstjóranum, Bogdan, sem er faðir Pawels. Pawel er sannfærður um sakleysi föður síns en rannsóknin dregur ýmis leyndarmál fram í dagsljósið. Aðalhlutverk: Maciej Stuhr, Katarzyna Dabrowska og Roma Gasiorowska. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt