
Teiknimyndaþættir fyrir börn byggðir á samnefndri breskri barnabók frá árinu 1994 eftir Sam McBratney, með myndskreytingum eftir Anitu Jeram. Bókin hefur verið gefin út á yfir 53 tungumálum og selst í yfir 28 milljónum eintaka.
Danni tígur er þáttaröð sem kennir börnum að túlka tilfinningar sínar. Hvenær upplifa þau sorg, reiði og hvenær eru þau þakklát. Danni notar tónlist og syngur um það sem hann upplifir sem leyfir börnum að tileinka sér það frekar. Þátturinn er ætlaður leikskólabörnum og kennir tilfinningagreind og sjálfsvirðingu sem og virðingu fyrir öðrum.
Íslensk heimildarmynd frá 2019 þar sem vitasaga landsins er rakin, allt frá árinu 1878 þegar vitaljós lýsti í fyrsta sinn á Íslandsströndum. Yfir vitum hvílir dulúð þar sem þeir standa í stórbrotnu umhverfi á mörkum lands og sjávar og laða að sér fólk hvaðanæva úr heiminum. Leikstjóri: Einar Þór Gunnlaugsson.
Heimildarþættir þar sem Halla Ólafsdóttir skoðar hvers vegna fólk flytur landshorna og heimshorna á milli - og hvað það er sem fólk kallar „heima“.
Valdís Hrönn Berg Ingudóttir og Ómar Smári Jónsson láta draum verða að veruleika með því að flytja til Spánar. Við hittum þau í Hafnarfirði og svo nokkrum mánuðum síðar á nýja heimilinu þeirra á Spáni. Við kynnumst tónlistarkonunni Markétu Irglova frá Tékklandi sem semur tónlist sína á Seltjarnarnesi með útsýni yfir Sundin. Við göngum um Bolungarvík – sem reynir að draga til sín fleiri íbúa svo þeir verði fleiri en þúsund og kynnumst Karólínu Elísabetardóttur sem flutti húsið sitt með sér í fjöllin – en hún vill hvergi frekar eiga heima.
Íslensk heimildarmynd um fiskveiðar Frakka við Íslandsstrendur fyrr á öldum og uppbyggingu „franska þorpsins“ á Fáskrúðsfirði, en kjarni þess er spítali sem Frakkar létu byggja í bænum. Leikstjórn og framleiðsla: Gísli Sigurgeirsson.
Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk í bæjum og sveitum og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Þórdís Claessen, Hafsteinn Vilhelmsson, Elsa María Guðlaugs - Drífudóttir og Amanda Guðrún Bjarnadóttir. Dagskrárgerð: Jóhannes Jónsson, Elvar Örn Egilsson, Hjalti Stefánsson og Björgvin Kolbeinsson.

Sænskir þættir um fiskveiðar. Þáttastjórnendurnir Emilie Björkman og Martin Falklind ferðast um Svíþjóð, hitta fiskveiðiáhugamenn, stunda veiðar og gefa góð ráð.

Heimildarmynd frá 2020 um mannlífið á veitingahúsinu Bryggjunni sem bræðurnir Alli og Krilli reka á hafnarbakkanum í Grindavík . Á hverjum morgni sker Krilli niður hráefnið í humarsúpuna í eldhúsinu á meðan Alli skrafar við gömlu sjóarana sem eru daglegir gestir þeirra. Leikstjórar: Rafa Molés og Pepe Andreu.

Loft hefur tekið jarðormana í sátt og kynnist nú ævintýralegri tilvist þeirra í gegnum sjónaukann sinn og endurspeglar sjálft sig í þeim.
Áróra er í heimsókn í loftbelgnum og kemst að því að Loft er ekki í neinu stjörnumerki. Ætli það sé meyja, naut, fiskur eða kannski sporðdreki?

Háværa ljónið Urri og félagar ferðast í gegnum frumskóginn. Á leiðinni lenda þau í skemmtilegum ævintýrum og þurfa að takast á við áskoranir og leita lausna í sameiningu.

Stutt umfjöllun Sumarlandans sem var á flakki sumarið 2021 og hitti landann fyrir í sínu náttúrulega umhverfi, uppi á fjöllum, úti í garði, inni í skógi og allt um kring. Umsjónarmenn: Gísli Einarsson, Guðríður Helgadóttir, Hafsteinn Vilhelmsson, Helga Margrét Höskuldsdóttir, Þórhildur Þorkelsdóttir og fleiri.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Heimildarþáttaröð um íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu, upphafsár þess og sögu, sigra og ósigra. Liðið er eitt þeirra fremstu í heiminum og stjörnur þess með þekktustu íþróttamönnum þjóðarinnar. En leið kvennalandsliðsins á þann stað sem það er á í dag var allt annað en greið.
Árið 1981 ákveður KSÍ að stofna kvennalandslið í knattspyrnu og stelpunar leika fyrsta landsleikinn við Skotland. Meðbyrinn er lítill og gagnrýnin er hávær – en baráttan er hafin.
Fjallað er um Íslendinga sem settu svip sinn á íslenskt samfélag um sína daga með margvíslegum hætti. Þættirnir spegla jafnframt sögu þjóðarinnar og samtíð á ýmsum tímum, menningu, listir, stjórnmál og fleira. Þeir eru byggðir á efni úr safni RÚV á nærfellt hálfrar aldar tímabili. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Ási í Bæ (Ástgeir Kristinn Ólafsson) var landskunnur aflakóngur í Vestmannaeyjum. Hann var höfundur margra vinsælla laga og texta en einnig mikilvirkur rithöfundur. Hann segir sögur af sjálfum sér og mannlífi í Eyjum fyrr á tíð og syngur ásamt fleiri söngvurum eigin lög og texta en einnig eru fluttir textar hans við lög eftir Oddgeir Kristjánsson. Dagskrárefnið er úr safni RÚV. Umsjón og dagkrárgerð: Andrés Indriðason.
Fjórða og síðasta þáttaröðin um ítölsku vinkonurnar Elenu og Lilu. Þættirnir eru byggðir á Napólí-sögum rithöfundarins Elenu Ferrante, sem farið hafa sigurför um heiminn. Vinkonurnar eru á fullorðinsaldri og lifa ólíku lífi en vináttan heldur enn. Aðalhlutverk: Alba Rohrwacher, Irene Maiorino og Fabrizio Gifuni. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Frönsk kvikmynd frá 2021 um mann sem er í afneitun gagnvart alvarlegum sjúkdómi sem hann þjáist af og móður hans sem þarf að horfast í augu við hið óumflýjanlega. Á milli þeirra eru læknir og hjúkrunarfræðingur sem reyna að vinna vinnuna sína á meðan þau aðstoða mæðginin við að finna frið. Leikstjóri: Emmanuelle Bercot. Aðalhlutverk: Catherine Deneuve, Benoît Magimel og Gabriel A. Sara. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.