24 stærstu sveitarfélög landsins keppa sín á milli í skemmtilegum spurningaleik. Sigmar Guðmundsson og Þóra Arnórsdóttir stýra þættinum. Dómari og spurningahöfundur er Ólafur Bjarni Guðnason. Útsendingu stjórnar Helgi Jóhannesson.
Kvikmyndasafn Íslands geymir fjársjóð af kvikmyndum sem sýna íslenskan veruleika snemma á síðustu öld. Egill Helgason og Gunnar Tómas Kristófersson rýna efni og sýna efni sem jafnvel enginn hefur séð. Dagskrárgerð: Ragnheiður Thorsteinsson.
Egill Helgason og Gunnar Tómas Kristófersson skoða kvikmyndir af íþróttaiðkun. Þær eru margs konar, allt frá fótbolta til glímu og fimleikasýninga. Einnig er fjallað um vandann við að skanna efni á Kvikmyndasafninu þegar varðveislutækni er sífellt að breytast.

Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
Danni tígur er þáttaröð sem kennir börnum að túlka tilfinningar sínar. Hvenær upplifa þau sorg, reiði og hvenær eru þau þakklát. Danni notar tónlist og syngur um það sem hann upplifir sem leyfir börnum að tileinka sér það frekar. Þátturinn er ætlaður leikskólabörnum og kennir tilfinningagreind og sjálfsvirðingu sem og virðingu fyrir öðrum.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.
Átök Ísrael og Íran hafa stigmagnast frá því að Ísrael hóf sprengjuárásir á Teheran á föstudag. Hundruð liggja í valnum og á annað þúsund hafa særst hingað til - en stjórnvöld beggja ríkja hóta aukinni hörku. Verður hægt að draga úr spennunni eða fer allt í bál og brand? Kastljós fer yfir stöðuna með Erlingi Erlingssyni, hernaðarsagnfræðingi. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra ræðir við okkur í beinu framhaldi.
Íslensk þáttaröð um ferðalög Kristjáns Gíslasonar sem lét draum sinn rætast og hélt í tíu mánaða ferðalag umhverfis jörðina á mótorhjóli árið 2014. Hann hjólaði um 35 lönd í fimm heimsálfum.
Í fyrsta þætti fer Kristján Gíslason frá Reykjavík til Dubai. Við undirbúning ferðarinnar þurfti að huga að ýmsu. Viðbrögð vina Kristjáns við fréttunum voru af ýmsum toga og voru tekin upp með falinni myndavél. Ferðalagið yfir Evrópu var þægilegt en ævintýrin hófust í Íran þar sem margt kom á óvart.
Sannsöguleg sænsk leikin þáttaröð um þrjá unga menn sem deildu þeirri sýn að fólk ætti að hafa frjálsan aðgang að upplýsingum, tónlist, bókum, sjónvarpsþáttum og kvikmyndum á netinu. Árið 2003 stofnuðu þeir niðurhalssíðuna The Pirate Bay sem varð fljótt ein sú stærsta í heiminum og gjörbylti internetinu. Aðalhlutverk: Simon Gregor Carlsson, Arvid Swedrup og Willjam Lempling. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.

Kvikmynd frá 2000 eftir Ragnar Bragason. Myndin fjallar um þrjár kynslóðir í sömu fjölskyldunni sem búa allar undir sama þaki í miðbæ Reykjavíkur. Ellilífeyrisþeginn Karl gengur með grasið í skónum á eftir gamalli kvikmyndastjörnu sem þjáist af minnisleysi og tíðum geðsveiflum. Júlía, barnabarn Karls, er barnshafandi og með tvo menn í takinu. Steingerður, móðir Júlíu, er yfir sig hrifin af Salómon, trúboða sem drekkur of mikið. Sögur persónanna fléttast saman þegar líður á og ýmislegt kemur á óvart. Aðalhlutverk: Björn Jörundur Friðbjörnsson, Eggert Þorleifsson, Kristbjörg Kjeld, Margrét Ákadóttir, Róbert Arnfinnsson og Silja Hauksdóttir.