Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Rætt við Andrii Sybiha utanríkisráðherra Úkraínu um stöðuna í stríðinu við Rússa og rætt við Friðrik Jónsson, sendiherra Íslands í Úkraínu og Póllandi um sama efni.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Sigríður Hagalín Björnsdóttir og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Eftir öryggisbrest hjá OpenAI í sumar hafa forkólfar nokkurra stærstu tæknifyrirtækja heims kallað eftir því að hægt verði á þróuninni. Á sama tíma eru fjárfestingar í gervigreind og orkuöflun fyrir hana orðnar mikilvægur drifkraftur hagvaxtar í Bandaríkjunum og Kína. Hvaða áhrif hefði það á heimsbúskapinn - og Ísland - ef hægt yrði á kapphlaupinu? Og hversu mikla orkuöflun á kostnað náttúruauðlinda er hægt að réttlæta? Andri Snær Magnason rithöfundur, Þóra Arnórsdóttir, forstöðumaður samskipta hjá Landsvirkjun, og Björgvin Ingi Ólafsson, sviðsstjóri hjá Deloitte, fóru yfir stöðuna.
Bjartsýni var ríkjandi á Vesturlöndum um aldamótin og útbreidd trú á sigurför frjálslynds lýðræðis, kapítalisma og hnattvæðingar. Fáir hefðu spáð að aldarfjórðungi síðar einkenndist heimsmyndin af átökum, uppgangi þjóðernishyggju og alþjóðakerfi sem ætti undir högg að sækja. Hvað gerðist – og hvert stefnir heimurinn? Guðmundur Jónsson, sagnfræðingur og prófessor emeritus, fer yfir sviðið í síðari hluta þáttar.
- Dagskrárliðurinn er textaður sjálfvirkt
- Endursýnt
Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 1996. Spyrill: Davíð Þór Jónsson. Dómari: Helgi Ólafsson. Stigavörður: Sólveig Samúelsdóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Í þessum þætti mætast lið Menntaskólans í Reykjavík og Menntaskólans við Hamrahlíð. Lið Menntaskólans í Reykjavík skipa Arnór Hauksson, Guðmundur Björnsson og Kjartan Björgvinsson. Lið Menntaskólans við Hamrahlíð skipa Inga Þóra Ingvarsdóttir, Örlygur Benediktsson og Björn Grétar Stefánsson.
- Endursýnt
Guðjón Friðriksson og Egill Helgason leiða áhorfendur um söguslóðir í Kaupmannahöfn. Borgin við Sundið var um aldaraðir hin eiginlega höfuðborg Íslands. Þangað leituðu Íslendingar til náms, starfa og fræðiiðkana, en Kaupmannahöfn var líka miðstöð verslunar Íslendinga. Við kynnumst Íslandskaupmönnum, stúdentum, sérvitringum, skáldum og stjórnmálamönnum, en líka fólki sem fór til Hafnar að afla sér iðnmenntunar eða einfaldlega til að freista gæfunnar. Víða í borginni leynast sögur af Íslendingum. Dagskrárgerð: Ragnheiður Thorsteinsson.
Egill og Guðjón fjalla um hinar lífsnauðsynlegu skipaferðir milli Danmerkur og Íslands og fara í virkið Kastellet, þar sem íslenskir fangar komu fyrst eftir að þeir voru fluttir til Hafnar. Auk þess fara þeir í hverfið í kringum höllina Amalienborg, á spítalann þar sem Jónas Hallgrímsson dó og á Fæðingarstofnunina, en þangað voru íslenskar konur sendar til að eiga börn á laun.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Sænsk þáttaröð frá 2023. Marie Olsson Nylander heldur í ævintýraferð með systur sinni þar sem þær ferðast frá Svíþjóð niður til Sikileyjar. Á leiðinni stoppa þær á ýmsum stöðum í leit að forngripum fyrir heimili Marie á Sikiley.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Ferðaþættir í umsjón Brynhildar Ólafsdóttur og Róberts Marshall. Að þessu sinni fara þau hjónin með gönguhóp um stórbrotið fjalllendi heima og erlendis. Það reynir á líkama, sál og samheldni í ólíkum tegundum útivistar.
Leikkonan Ilmur Kristjánsdóttir og rannsóknarblaðamaðurinn Jóhannes Kr. Kristjánsson slást í för um eitt fjölbreyttasta landslag íslenska hálendisins. Gengið er um Strútssvæðið, Hólmsárlón þverað á léttum göngubátum og að lokum hjólað yfir Mælifellssand. Ferðin reynir á ólíka færni og úthald en leiðir hópinn um óvenjulegt samspil eldfjalla, jökulvatns og auðna. Hér verða ferðalangarnir að laga sig að landinu og skipta um farartæki eftir því sem leiðin krefst.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Íslenskir viðtalsþættir þar sem skyggnst er inn í líf fólks sem nýtur eftirlaunaáranna á aðdáunarverðan og jákvæðan hátt. Í hverjum þætti fáum við innsýn í líf einnar manneskju, heyrum sögu hennar, lífssýn og lærdóm sem hún hefur dregið af lífinu, auk þess sem við ræðum þær áskoranir sem fylgja því að eldast. Dagskrárgerð: Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir. Framleiðsla: Elín Sveinsdóttir.
Jakob Hörður Magnússon stendur enn vaktina á Horninu, einu elsta veitingahúsi landsins, 75 ára. Hann hefur verið ómissandi hluti af íslenska veitingageiranum áratugum saman og fékk heiðursorðu Klúbbs matreiðslumeistara 2025 fyrir einstakt æviverk í þágu íslenskrar veitingamenningar. Þegar vinnudeginum lýkur tekur tónlistin völdin því Jakob er gítarleikari í hljómsveitinni Alto sem varð til þegar hann var unglingur í Hagaskóla.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt

Vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón og handrit: Ari Páll Karlsson og Embla Bachmann. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
1. Flokkur Pútíns vann sigur í rússneskum þingkosningum 2. Ferjuðu 1799 steina upp Himnastigann. Ljúkum svo þættinum á Bangsaspítalanum🧸
- Dagskrárliðurinn er textaður
Þáttaröð í sex hlutum þar sem fjallað er um sameiginlegar minningar íslensku þjóðarinnar á léttan og nýstárlegan hátt. Umsjónarmennirnir Margrét Blöndal og Felix Bergsson leggjast í fullkomlega óvísindalega mannfræðirannsókn til að reyna að skilja íslensku þjóðina betur. Að þessu sinni skoða þau ýmsa þætti í íslensku mannlífi sem flestir þekkja. Dagskrárgerð: Ragnheiður Thorsteinsson.
Í þættinum fjalla Bergsson og Blöndal um útrásardrauma Íslendinga. Drauma um veitingastað í London, drauma hljómsveita um heimsfrægð, draumurinn um Obsession og draumurinn um hina íslensku Mjallhvíti - sem kom frá Siglufirði.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Loftslagsráðherra. Segir að bílaleigur ráði hvort þær verði í fararbroddi orkuskipta á Íslandi eða dragbítur. Bílaleigur hafi hingað til keypt hlutfallslega miklu færri rafmagnsbíla en almenningur. Eru bílaleigur að draga lappirnar eða ættu stjórnvöld að líta sér nær? Steingrímur Birgisson, forstjóri Hölds- Bílaleigu Akureyrar, og Jón Ásgeir Haukdal Þorvaldsson, teymisstjóri hjá Umhverfis- og orkustofnun, eru gestir Kastljóss.
Kengu Kuma einn þekktasti arkitekt heims, er þekktur fyrir að sækja innblástur í náttúruna og japanska byggingarhefð og leitast við að láta byggingar falla inn í umhverfi sitt fremur en að drottna yfir því. Meðal kunnustu bygginga hans er Þjóðarleikvangur Japana í Tokýó. Hann var staddur á Íslandi á dögunum. Kastljós ræddi við hann.
Lygar, framhjáhald og meðvirkni eru umfjöllunarefni leikritsins Svikasögur sem sýnt er í Borgarleikhúsinu um þessar mundir. Við kynnum okkur verkið.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Bein útsending
Heimildarþættir þar sem saga íslenskrar hönnunar er rakin, allt frá fyrstu brautryðjendum til yngri kynslóða. Í hverjum þætti er sjónum beint að áhrifamiklum hönnuðum og verkum þeirra, samhengi þeirra við samtímann og arfleifð. Dagskrárgerð: Jakob Halldórsson.
Fjallað er um Halldór Hjálmarsson, innanhússarkitekt, sem mótaði fagurfræði og fagvitund greinarinnar.
- Dagskrárliðurinn er textaður
Velsk spennuþáttaröð frá 2025. Blaðakona rannsakar banvæna sprengingu sem varð við vatnsból árið 1995. Maður sem dæmdur var fyrir morð er nú laus úr fangelsi 30 árum seinna og heldur enn fram sakleysi sínu. Heimkoma hans ýfir upp gömul sár í samfélaginu og leyndarmál fortíðar leita upp á yfirborðið. Aðalhlutverk: Sian Reese-Williams, Mark Lewis Jones og Nia Roberts. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Þriðja þáttaröð þessara vinsælu íslensku spennuþátta. Rannsóknarlögreglumaðurinn Andri Ólafsson er kominn í rólegra starf innan lögreglunnar og hættur að rannsaka morðmál. En þegar morð er framið á landi sértrúarsafnaðar norður í landi gera draugar fortíðar óvænt vart við sig og Andri neyðist til að horfast í augu við þann sem hann óttast mest - sjálfan sig. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Morð er framið á landi sértrúarsafnaðar norður í landi og það leiðir Andra á gamlar slóðir, þar sem Hinrika tekur honum opnum örmum.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Breskir glæpaþættir frá 2022 um skosku rannsóknarlögreglukonuna Karen Pirie. Í kjölfar stöðuhækkunar innan skosku lögreglunnar hefur hún rannsókn á gömlu, óleystu morðmáli og kemur auga á ýmsa vankanta í upphaflegu rannsókninni. Aðalhlutverk: Lauren Lyle, Chris Jenks og Emer Kenny. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt