Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 1998. Spyrill: Davíð Þór Jónsson. Dómari og spurningahöfundur: Gunnsteinn Ólafsson. Stigavörður: Katrín Jakobsdóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Í þessum þætti mætast lið Menntaskólans í Reykjavík og Menntaskólans við Hamrahlíð í úrslitum. Lið Menntaskólans í Reykjavík skipa Arnar Þór Stefánsson, Sverrir Guðmundsson og Viðar Pálsson. Lið Menntaskólans við Hamrahlíð skipa Fjalar Hauksson, Inga Þóra Ingvarsdóttir og Oddur Þórir Þórarinsson.
- Endursýnt
Viðtals- og tónlistarþáttaröð í umsjón Jóns Ólafssonar. Jón fær til sín ýmsa tónlistarmenn í spjall og saman laða þeir fram ljúfa tóna. Dagskrárgerð: Jón Egill Bergþórsson.
Viðtals- og tónlistarþáttaröð í umsjón Jóns Ólafssonar. Jón fær til sín ýmsa tónlistarmenn í spjall og laðar fram í þeim ljúfa tóna fyrir áhorfendur. Í þessum þætti er Sigurjón Kjartansson gestur Jóns. Dagskrárgerð: Jón Egill Bergþórsson.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Þáttaröð þar sem draugatrú Íslendinga tekin til skoðunar ásamt annarri þjóðtrú, á borð við hjátrú og trú á álfa. Rætt er við ýmsa sérfræðinga og þá sem hafa haft persónuleg kynni af afturgöngum, álfum eða framliðnum. Rýnt er í hvernig draugatrú endurspeglar samfélagið, menninguna og síðast en ekki síst, sálarlíf og samvisku mannsins. Umsjón: Bryndís Björgvinsdóttir. Dagskrárgerð: Rakel Garðarsdóttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt

Stuttir þættir um sögurnar á bak við áhugaverðar ljósmyndir. Í hverjum þætti er fjallað um eina ljósmynd og sögu hennar – hvað var að gerast þegar myndin var tekin, hverjar voru aðstæður fólksins á ljósmyndinni og hvert er samhengið við nútímann? Leikstjóri: Þorsteinn J. Framleiðsla: Þetta líf, þetta líf.
Konurnar í saumaklúbbnum Bolla héldu veglegt kaffisamsæti fyrir Vigdísi Finnbogadóttur í Ólafsvík á kosningarferðalagi hennar 1980 og ljósmyndari og blaðamaður frá Vísi fylgdust með. Gunnar V. Andrésson segir frá tilurð myndarinnar. Maggý Hrönn Hermannsdóttir og Sigríður Þóra Eggertsdóttir segja frá því sem gerðist á bak við tjöldin.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt

Sænskir matreiðsluþættir með vinkonunum Karoline og Elenore þar sem þær elda spennandi og gómsæta grænkerarétti úti í guðsgrænni náttúrunni.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt


Fyrsta þáttaröðin af hinni vinsælu Blæju. Blæja er sex ára hundur sem er stútfull af óstöðvandi gleði. Allir venjulegir hlutir geta orðið ævintýri hjá Blæju og fjölskyldu hennar.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Jojo er alveg að verða fimm ára. Hún er svo heppin að búa í nágrenni við ömmu sína. Saman bralla þær ýmislegt.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Litlu lundasystkinin Úna og Bubbi búa á eyjunni Lundakletti. Þau lenda sífellt í nýjum ævintýrum með vinum sínum.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón: Ari Páll Karlsson, Embla Bachmann og Snæ Humadóttir. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
1. Svakalegasti lestrarskóli landsins 2. Jón Gnarr úr þingflokki Viðreisnar.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Dönsk þáttaröð um ungt par sem vill einfalda líf sitt og hefur búskap.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Helstu íþróttafréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Veðurfréttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður sjálfvirkt

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Bein útsending

Sigríður Hagalín Björnsdóttir og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Silfrið í kvöld verður helgað heilbrigðismálunum. Landspítalinn sér sig knúinn til að skera niður um tvo milljarða miðað við fjárlagafrumvarpið, heimilislæknar gagnrýna niðurskurð til heilsugæslunnar, og uppi eru nýjar hugmyndir um einkarekstur í heilbrigðiskerfinu. Hvernig er best að skipuleggja og fjármagna það svo það þjóni þörfum þjóðarinnar?
Gestir þáttarins eru Alma Möller heilbrigðisráðherra, Dagný Jónsdóttir framkvæmdastjóri Orkuhússins, Runólfur Pálsson forstjóri Landspítalans og Tinna Laufey Ásgeirsdóttir prófessor í heilsuhagfræði við Háskóla Íslands.
Umsjón með þættinum hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður sjálfvirkt
- Bein útsending

Heimildarþættir frá 2024 þar sem leikkonan og grínistinn Sue Perkins ferðast frá París til Istanbúl. Á leiðinni kynnist hún líflegri menningu, fallegu landslagi og áhugaverðu fólki.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Finnsk leikin þáttaröð frá 2026. Anna er lítilmagni í finnska skíðagöngulandsliðinu og er tilbúin til að fórna öllu til að komast í hóp þeirra bestu. Hún grípur tækifærið þegar henni býðst að æfa með dularfullu skíðadrottningunni Mariu. Á milli þeirra myndast eitruð samkeppni þar sem aðeins önnur þeirra getur staðið uppi sem heimsmeistari. Aðalhlutverk: Roosa Söderholm, Sannah Nedergård og Kreeta Salminen. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Áströlsk þáttaröð byggð á samnefndri skáldsögu eftir Liane Moriarty. Sophie Honeywell erfir hús á lítilli eyju í grennd við Sydney. Nokkrum áratugum áður hvarf par á eyjunni og fljótlega eftir komuna þangað áttar Sophie sig á að hún er full af leyndardómum. Aðalhlutverk: Teresa Palmer, Miranda Richardson og Danielle Macdonald. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Norsk leikin þáttaröð frá 2025. Þegar nafn og andlit internettröllsins Toms er gert opinbert í kjölfar kvenfjandsamlegra ummæla hans ákveður hann að dulbúast sem kona til að forðast ofsóknir. Í kjölfarið öðlast hann nýja sýn á stöðu kynjanna. Aðalhluverk: Anders Baasmo, Ingrid Giæver og Jonas Strand Gravli. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Leikir í bikarkeppni karla í körfubolta.
Leikur Breiðabliks og Grindavíkur í 32-liða úrslitum VÍS-bikars karla í körfubolta.
- Bein útsending

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.