Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Í Kastljósi kvöldsins var fjallað um veðurfyrirbærið El-Niño. Vísindamenn telja að El-Niño atburðurinn í vetur verði sá kröftugasti í manna minnum. Rætt var við Mikael Allan Mikaelsson sérfræðing í loftslagsmálum. Í setti var rætt við Önnu Huldu Ólafsdóttur skrifstofurstjóra loftslagsþjónustu og aðlögunar hjá Veðurstofu Íslands um hvar Ísland sendur þegar kemur að því að búa þjóðina undir loftslagsbreytingar. Guðrún Sóley settist þá niður með Elísabetu Ronaldsdóttur kvikmyndaklippara sem gerir það gott í Hollywood.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Sigríður Hagalín Björnsdóttir og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Ræða Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna vakti heimsathygli um helgina, þar sem hún sneri ásökunum Benjamíns Netanyahus um siðferðislegt hugleysi upp á hann sjálfan, og gagnrýndi þá þjóðarleiðtoga sem stunda stríðsrekstur og brot á alþjóðalögum. Silfrið verður helgað umræðu um framtíð alþjóðakerfisins, friðsamlegs samstarfs þjóða heims og stöðu Íslands í heiminum.
Rætt verður við Þorgerði Katrínu, auk þess sem Friðjón Friðjónsson almannatengill, Guðbjörg Ríkey Thoroddsen Hauksdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur, Helgi Steinar Gunnlaugsson blaðamaður og Jón Ólafsson heimspekingur ræða stöðuna í alþjóðamálum.
Umsjón með þættinum hefur Sigríður Hagalín Björnsdóttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður sjálfvirkt
- Endursýnt

Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 1997. Spyrill: Davíð Þór Jónsson. Dómari og spurningahöfundur: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir. Stigavörður: Katrín Jakobsdóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Í þessum þætti mætast lið Menntaskólans við Hamrahlíð og Menntaskólans að Laugarvatni. Lið Menntaskólans við Hamrahlíð skipa Inga Þóra Ingvarsdóttir, Björn Grétar Stefánsson og Oddur Þórir Þórarinsson. Lið Menntaskólans að Laugarvatni skipa Guðjón Ármannsson, Jón Snæbjörnsson go Hlynur Heimisson.
- Endursýnt
Sænsk þáttaröð frá 2023. Marie Olsson Nylander heldur í ævintýraferð með systur sinni þar sem þær ferðast frá Svíþjóð niður til Sikileyjar. Á leiðinni stoppa þær á ýmsum stöðum í leit að forngripum fyrir heimili Marie á Sikiley.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Íslenskir viðtalsþættir þar sem skyggnst er inn í líf fólks sem nýtur eftirlaunaáranna á aðdáunarverðan og jákvæðan hátt. Í hverjum þætti fáum við innsýn í líf einnar manneskju, heyrum sögu hennar, lífssýn og lærdóm sem hún hefur dregið af lífinu, auk þess sem við ræðum þær áskoranir sem fylgja því að eldast. Dagskrárgerð: Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir. Framleiðsla: Elín Sveinsdóttir.
Guðni Guðmundsson, bóndi á Þverlæk í Holtum, er kvikur og knár þrátt fyrir að vera 92 ára. Hann sinnir daglegum fjósaverkum auk þess sem hann hefur gengið með vegum á Suðurlandi í um tvo áratugi og tínt dósir til styrktar íþróttastarfi í sveitarfélaginu. Hann var sæmdur riddarakrossi 2022 fyrir framlag sitt til umhverfisverndar og samfélagsþjónustu.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt

Vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Ástsælu Múmínálfar Tove Jansson snúa aftur og lenda í alls kyns skemmtilegum ævintýrum.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Þriðja þáttaröðin um hina vinsælu Blæju og Hælbein fjölskylduna. Daglegt líf fjölskyldunnar gengur sinn vanagang, en hins vegar er enginn dagur eins þegar Blæja og Bára eiga í hlut.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Jasmín og Jómbi eru góðir vinir sem elska tónlist. Saman njóta þau tónanna sem óma um Hljómbæ.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Rán er ung og hress stelpa sem styttir sér stundir með ímynduðu vinkonu sinni. En hún Rún virðist raunverulegri en flestir.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón: Ari Páll Karlsson, Embla Bachmann og Snæ Humadóttir. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
Vísindi, hestar og afmælisveisla í þætti dagsins🧪🐎🎉
1. Vísindavaka í Laugardalshöll 2. Laufskálarétt. Ljúkum þættinum á lokaatriði úr afmælisþætti sjónvarpsins sem verður sýndur annað kvöld.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Þáttaröð í sex hlutum þar sem fjallað er um sameiginlegar minningar íslensku þjóðarinnar á léttan og nýstárlegan hátt. Umsjónarmennirnir Margrét Blöndal og Felix Bergsson leggjast í fullkomlega óvísindalega mannfræðirannsókn til að reyna að skilja íslensku þjóðina betur. Að þessu sinni skoða þau ýmsa þætti í íslensku mannlífi sem flestir þekkja. Dagskrárgerð: Ragnheiður Thorsteinsson.
Í þessum lokaþæti fjalla Bergsson og Blöndal um stríð og deilur Íslendinga. Einvígi aldarinnar og dömubindi koma við sögu sem og herstöðvarandstæðingar og herskáir skipherrar - og auðvitað finnskar kartöflur.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Íþróttafréttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Veðurfréttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður sjálfvirkt

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Kveikur er fréttaskýringaþáttur með áherslu á rannsóknarblaðamennsku. Ritstjórn og dagskrárgerð: Ragnhildur Þrastardóttir, Arnar Þórisson, Árni Þór Theodórsson, Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir, Hákon Pálsson, Ingvar Haukur Guðmundsson, Jóhann Bjarni Kolbeinsson og Sunna Karen Sigurþórsdóttir.
Tæplega 40% íbúa hjúkrunarheimila fengu geðrofslyf í fyrra. Ættingjar telja að fólkið þeirra hafi verið lyfjað fram úr hófi með lyfjunum án þess að vera með greiningu á geðsjúkdómi. Í þættinum er sögð saga manns sem lá hálfsofandi á hjúkrunarheimili í um tvær vikur eftir að hann var settur á tvenn geðrofslyf.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Heimildarþættir þar sem saga íslenskrar hönnunar er rakin, allt frá fyrstu brautryðjendum til yngri kynslóða. Í hverjum þætti er sjónum beint að áhrifamiklum hönnuðum og verkum þeirra, samhengi þeirra við samtímann og arfleifð. Dagskrárgerð: Jakob Halldórsson.
Fjallað er um Ragnar Kjartansson, hönnuð og listamann í Glit, þar sem hönnun og list mætast.
- Dagskrárliðurinn er textaður
Velsk spennuþáttaröð frá 2025. Blaðakona rannsakar banvæna sprengingu sem varð við vatnsból árið 1995. Maður sem dæmdur var fyrir morð er nú laus úr fangelsi 30 árum seinna og heldur enn fram sakleysi sínu. Heimkoma hans ýfir upp gömul sár í samfélaginu og leyndarmál fortíðar leita upp á yfirborðið. Aðalhlutverk: Sian Reese-Williams, Mark Lewis Jones og Nia Roberts. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
Þriðja þáttaröð þessara vinsælu íslensku spennuþátta. Rannsóknarlögreglumaðurinn Andri Ólafsson er kominn í rólegra starf innan lögreglunnar og hættur að rannsaka morðmál. En þegar morð er framið á landi sértrúarsafnaðar norður í landi gera draugar fortíðar óvænt vart við sig og Andri neyðist til að horfast í augu við þann sem hann óttast mest - sjálfan sig. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Danskt vélhjólagengi kemur í bæinn og ógnar friði íbúanna. Meðlimir sértrúarsafnaðarins eru sérlega áhyggjufullir og Hinrika kallar eftir liðsauka að sunnan.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Breskir glæpaþættir frá 2022 um skosku rannsóknarlögreglukonuna Karen Pirie. Í kjölfar stöðuhækkunar innan skosku lögreglunnar hefur hún rannsókn á gömlu, óleystu morðmáli og kemur auga á ýmsa vankanta í upphaflegu rannsókninni. Aðalhlutverk: Lauren Lyle, Chris Jenks og Emer Kenny. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.