Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Rekstur heilbrigðisþjónustu á vegum SÁÁ er í algjöru uppnámi. Nýráðinn yfirlæknir hætti störfum eftir tvær vikur og sem stendur er engin fagleg forysta fyrir þjónustunni. Rætt við Maríu Heimisdóttur, landlækni og Runólf Pálsson, forstjóra Landspítala.
Bryndís Halldórsdóttir og Hany Hadaya hafa dansað og kennt argentínskan tangó í 30 ár. Þau voru fyrstu atvinnukennararnir í þeim tangó á Íslandi. Þau fagna afmælinu með hátíð.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 1997. Spyrill: Davíð Þór Jónsson. Dómari og spurningahöfundur: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir. Stigavörður: Katrín Jakobsdóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Í þessum þætti mætast lið Menntaskólans á Akureyri og Menntaskólans á Egilsstöðum. Lið Menntaskólans á Akureyri skipa Arnljótur Bjarki Bergsson, Páll Þórsson og Særún María Gunnarsdóttir. Lið Menntaskólans á Egilsstöðum skipa Stefán Bogi Sveinsson, Þórður Mar Þorsteinsson og Hrafnkell Freyr Lárusson.
- Endursýnt
Mynd um Þingeyrakirkju í Austur-Húnavatnssýslu, gripi kirkjunnar og sögu. Erlendur Eysteinsson, meðhjálpari, segir sögu kirkjunnar og staðarins og Þór Magnússon, fyrrverandi þjóðminjavörður, segir frá gripum kirkjunnar. Dagskrárgerð: Helgi H. Jónsson og Karl Sigtryggsson.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Þættir sem fjalla um hringrásarhagkerfið, þar sem hlutir og hráefni fara í hring og eins manns rusl verður annars fjársjóður. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir og Freyr Eyjólfsson. Framleiðsla: Republik.
Er hægt að byggja hús úr rusli? En hampsteypu eða hráefnum sem voru einu sinni í öðru húsi? Eru gömul húsgögn jafngóð og ný?
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Þáttaröð um eyðibýli á Íslandi. Þar sem á árum áður voru reisulegir sveitabæir með iðandi mannlífi standa nú húsin tóm. Rætt er um byggingu bæjanna og talað við fólk sem tengist stöðunum á einn eða annan hátt. Farið er í Suðurhús í Suðursveit, Hamra á Mýrum, Múlakot í Fljótshlíð, Öxney á Breiðafirði, Heiði á Langanesi og Vatnshorn í Skorradal. Umsjónamaður er Guðni Kolbeinsson og dagskrárgerð annaðist Björn Emilsson.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt

Karla er 8 ára kjúklingur, sem hefur það að markmiði að halda öllum ánægðum, svo lengi sem það kemur ekki niður á lífi hennar. Hún elskar skólann sinn og alla vini sína. Hún leggur hart að sér til að þóknast öllum, en stundum ganga hlutirnir ekki alveg eins og áætlað var. Í þessum þáttum eru félagsleg samskipti og tilfinningar þeim tengd könnuð út frá heimi krakkanna. Hvað er rétt og hvað er rangt? Getur maður átt fleiri en einn besta vin?
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Velkomin til Eplabæjar. Eplabær er svo daufur og óspennandi að hann hefur verið tekinn út af landakortum. En ef betur er að gáð fela jafnvel mestu leiðindin í sér ævintýri. Stundum getur ómerkilegasti staðurinn orðið vettvangur stórkostlegra uppátækja – ef ímyndunaraflið fær að ráða.
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Flóra er níu ára og finnur gat í limgerðinu úti í garði. Hún skríður í gegn og er skyndilega stödd í skóginum endalausa – galdraheimi þar sem allt getur gerst. Þar ráfa um skrítnar og stórkostlegar verur. Þær lenda í ýmiss konar vandræðum og enginn getur hjálpað þeim – nema kannski Flóra sjálf?
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Þegar afi ykkar er búin að þjálfa ykkur sem skrímslaveiðimenn, þá er ekkert annað í stöðunni en að veiða öll skrímslin! Það er þó eitt vandamál, krakkarnir elska skrímslin og vilja helst bara bjarga þeim. Það geta þau gert á meðan afi blundar, eða hvað?
- Aðgengilegt eingöngu á Íslandi
- Endursýnt
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón: Ari Páll Karlsson, Embla Bachmann og Snæ Humadóttir. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
Í þætti dagsins fjöllum við um Grænland.
1. Samkomulag um Grænland 2. Viðtal við Boga Ágústsson.
- Dagskrárliðurinn er textaður
Í átta þáttum ræðir Þóra Arnórsdóttir við konur sem hafa rutt brautina á hinum ýmsu sviðum mannlífsins. Rætt verður við fyrstu lögreglukonurnar, fyrsta prófessorinn, fyrstu konuna sem leiddi kvennalandslið, fyrsta prestinn, einn fremsta kvikmyndaklippara Íslands, einn fyrsta gullsmiðinn og fyrstu íslensku konuna sem söng lag inn á plötu. Dagskrárgerð: Eiríkur Ingi Böðvarsson.
Rætt við Ingibjörg Þorbergs sem fyrst kvenna á Íslandi söng eigið lag og texta inn á hljómplötu. Hún lauk einnig burtfrararprófi á klarínett frá Tónlistarskólanum sem var einsdæmi á þeim tíma.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Snjóflóð sem féll fyrir sex árum gerði sérfræðingum ljóst að hús undir varnargörðum væru ekki jafn örugg og áður var talið. Ríkið ákvað fyrir 30 árum að byggja varanlegar varnir ofan við alla byggð á snjóflóðahættusvæðum. Því verki er ekki lokið og líkur eru á að biðin eftir varnargörðum lengist enn. Ólöf Rún Erlendsdóttir, fréttamaður, fer yfir málið.
Rætt við Jóhann Pál Jóhannsson, umhverfis- orku- og loftslagsráðherra, um stöðu ofanflóðavarna.
Sænski stórleikarann Alexander Skarsgård er heiðursverðlaunahafi RIFF í ár. Hann er í ítarlegu viðtali í Kastljósi.
- Dagskrárliðurinn er textaður
Í tilefni af því að 60 ár eru liðin síðan Ríkisútvarpið hóf sjónvarpsútsendingar verður boðið upp á lifandi afmælisþátt þar sem saga sjónvarpsins, ógleymanleg augnablik og sameiginlegar minningar þjóðarinnar fléttast saman við tónlist og skemmtun.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.
- Dagskrárliðurinn er textaður

Kvikmynd eftir Hilmar Oddsson frá 1995 byggð á lífi Jóns Leifs tónskálds á tímum seinni heimsstyrjaldar. Tónskáldið Jón Leifs á bjarta framtíð fyrir sér þegar hann verður ástfanginn af gyðingastúlkunni Annie Riethof, sem er eftirsóttur píanóleikari. Draumur Jóns um frægð og frama snýst upp í baráttu um líf og dauða í landi sem er óðum að breytast í helvíti á jörð. Eftir að foreldrar Annie eru handteknir og fluttir til útrýmingabúðanna í Dachau er Leifsfjölskyldunni nauðugur einn kostur að flýja land en frelsið reynist dýru verði keypt. Aðalhlutverk: Þröstur Leó Gunnarsson, Ruth Ólafsdóttir, Winfried Wagner.
- Dagskrárliðurinn er textaður
- Endursýnt