Hrekkjavökuupphitun Krakkaheimskviða
Í þessum þætti Krakkaheimskviða ferðumst við um allan heim og skoðum hrekkjavökutengdar fréttir. Hvers vegna eru graskerin minni í ár og hvernig býr maður til búninga? Það er hryllilegt…
Íslendingar ganga til þjóðaratkvæðagreiðslu núna í lok ágúst um það hvort við viljum skoða inngöngu í Evrópusambandið. Það er því ekki úr vegi að rifja upp umfjöllun frá því í vor um ESB, eftir sögulegar kosningar í Ungverjalandi.

Í Krakkaheimskviðum fjöllum við um fréttir af því sem gerist ekki á Íslandi, en tengist því samt stundum. Karitas kafar í heimsmálin ásamt góðum gestum og fjallar á einfaldan, skýran og skemmtilegan hátt um allt milli himins og jarðar. Umsjón: Karitas M. Bjarkadóttir