Hrekkjavökuupphitun Krakkaheimskviða
Í þessum þætti Krakkaheimskviða ferðumst við um allan heim og skoðum hrekkjavökutengdar fréttir. Hvers vegna eru graskerin minni í ár og hvernig býr maður til búninga? Það er hryllilegt…
Í þessum þætti Krakkaheimskviða skoðar Karitas breska rithöfundinn Jane Austen, hvað var svona merkilegt við hana og hvers vegna bækurnar hennar hafa aldrei verið vinsælli en nú, 250 árum eftir að hún fæddist.

Í Krakkaheimskviðum fjöllum við um fréttir af því sem gerist ekki á Íslandi, en tengist því samt stundum. Karitas kafar í heimsmálin ásamt góðum gestum og fjallar á einfaldan, skýran og skemmtilegan hátt um allt milli himins og jarðar. Umsjón: Karitas M. Bjarkadóttir