Frumsamið lag, seinni hluti
Hljómsveitin Gulu kettirnir heldur áfram að semja sitt eigið lag og flytur svo lokaútgáfuna. Hljómsveitarmeðlimir: Aldís María Sigursveinsdóttir, Fatíma Rós Joof, Hilmir Þór Snæland…
Krakkarnir halda áfram að æfa Barfly með Jeff Who? og semja íslenskan texta við lagið. Við kynnumst nokkrum þekktustu gítarleikurum tónlistarsögunnar og sjáum að lokum hljómsveitina flytja lagið. Hljómsveitarmeðlimir: Elísabet Hauksdóttir, Hjörleifur Daði Oddsson, Onni Máni Sigurðsson og Þorgerður K. Hermundardóttir. Tónlistarstjóri: Sigurður Ingi Einarsson.

Fjórir krakkar í rokkhljómsveit æfa þekkt íslenskt rokklag og semja eigið lag. Í leiðinni fræðumst við um hljóðfærin í hljómsveitinni og rokktónlistarsöguna.