
Vaka - Þjóðlistahátíð
Þjóðdansar, rímur, gárur og pólskt dulcimer
Á þjóðlistahátíðinni Vöku í september 2026 kenndi margra grasa. Í þessum þætti ræðir Pétur Grétarsson við Ragnheiði Gröndal og Alexöndru Kjeld um hátíðina og listafólk hennar.
Við heyrum ma samantekt Atla Freys Hjaltasonar um íslensku þjóðdansana og brot úr Grænkerarímu Ragnheiðar Gröndal. Bára Grímsdóttir segir frá Gárum - nýrri plötu þeirra Chris Foster (sjá mynd). Pólska tónlistarkonan Ania Broda syngur og spilar með á pólskt dulcimer þjóðlög frá heimalandi sínu, og Kristján Hrannar Pálsson kveður úr eigin rímum af hirðinni í Noregi - Metturímur.
- Birt
- Aðgengilegt til
- Rennur ekki út
- Lengd
