Síðdegisútvarpið
Þau Valur Grettisson, Guðrún Dís Emilsdóttir og Hrafnhildur Halldórsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu á daginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Heyrnarhjálp félag heyrnarskertra á Íslandi sendi frá sér yfirlýsingu á dögunum þar sem félagið lýsir yfir þungum áhyggjum yfir stöðu barna og fullorðinna á heyrnarmælingu og heyrnartækjum en nærri tveggja ára bið eftir þjónustu hjá Heyrnar og talmennastöð Íslands og ljóst að úrlausna er þörf. Ennfremur kemur þar fram að heyrnarskert börn eru að bíða svo mánuðum skiptir sem og fólk með mjög alvarlega heyrnarskerðinu. Kristján Sverrisson,forstjóri Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands og Halla B. Þorkelsson formaður Heyrnarhjálpar, landssamtaka heyrnarskertra koma til okkar á eftir og fara yfir þessi mál með okkur.
Við ætlum að fá til okkar í þáttinn á eftir Maríu Jimenez Pacifico. María er búsett hér á landi en hún fæddist í Kólumbíu en kom hingað til lands á unglingsaldri og hefur hún unnið að því að kynna Íslendinga fyrir kólumbískri matargerð en hún rekur meðal annars matarvagn auk þess að vera fyrsti kólumbíski matvælaframleiðandinn á Íslandi. Við ætlum að forvitnast um þessa ungu konu á seinni tímanum.
Fiskidagurinn mikli á Dalvík heyrir sögunni til. Stjórn samnefnds félags, sem stofnað var árið 2005 til að halda utan um samkomuhaldið, hefur ákveðið að láta nú staðar numið. En hver er ástæðan fyrir því að svo fjölmenn og vinsæl hátíð er lögð af ? Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir er sveitastjóri í Dalvíkurbyggð hún verður á línunni hjá okkur.
Hallfríður Kristín Jónsdóttir og Hildur Ármannsdóttir stefna ásamt fleirum að því að gefa út handbók um brjóstagjöf. Bókin hugsuð sem handbók fyrir foreldra, ömmur og afa, fagfólk og alla þá sem vilja styðja og valdefla konur í brjóstagjöf. Hallfríður og Hildur koma til okkar á eftir og segja okkur betur frá
En við byrjum í Grindavík á línunni er Páll Valur Björnsson íbúi sem við ræddum við síðast á föstudaginn.
Þau Valur Grettisson, Guðrún Dís Emilsdóttir og Hrafnhildur Halldórsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu á daginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.