
Setning Alþingis
Bein útsending frá guðsþjónustu í Dómkirkjunni og setningu Alþingis. Kynnir: Magnús Geir Eyjólfsson.
Guðsþjónusta:
Biskup Íslands, séra Guðrún Karls Helgudóttir, þjónar fyrir altari ásamt séra Elínborgu Sturludóttur, dómkirkjupresti
Prédikari er Séra Óskar Hafsteinn Óskarsson, prófastur í Hruna og organisti er Guðmundur Sigurðsson sem jafnframt stjórnar Kammerkór Dómkirkjunnar sem syngur. Sigurður Flosason leikur á saxófón.
TÓNLIST Í MESSUNNI:
Fyrir predikun:
Forspil: Ljósfaðir. Lag: Sigurður Flosason.
Sálmur 728. Ljósfaðir. Sigurður Flosason / Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson.
Heilsan og kollekta.
Guðspjall.
Sálmur 776. Sjá bát á bárum hrakti. Leif Ofstad / Eliax Blix - Valdemar V. Snævarr.
Prédikun.
Sálmur 448. Það sem augu mín sjá. Ragnhildur Gísladóttir / Hjörtur Pálsson.
Bæn - Faðir vor.
Blessun.
Lokasálmur 785. Yfir voru ættarlandi. Sigfús Einarsson / Steingrímur Thorsteinsson.
Eftirspil: Hver á sér fegra föðurland. Emil Thoroddsen / Hulda.
Að guðsþjónustu lokinni gengur þingheimur, kennimenn og gestir til Alþingishúss þar sem þing verður sett.