Rokkland

Leyft öllum aldurshópum

Sálin hans Jóns míns

Rokkland dagsins er endurfluttur þáttur frá 14. desember 2008 og gestir þáttarins eru þeir Stebbiog Gummi úr Sálinni hans Jóns Míns. Þegar þátturinn var frumfluttur var Sálin að fagna 20 ára starfsafmæli og af þvi tilefni gaf útgáfufyrirtæki þeirra -  Sena frá sér þrjár afurðir sem allar bera heitið “Hvar er draumurinn”. Sálin kom fram í fyrsta skipti í mörg ár á 60 ára afmælistónleikum Stebba í Eldborg í Hörpu um síðustu helgi.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Rokkland

Fyrsti þáttur Rokklands fór í loftið á Rás 2 þann 7. október 1995.

Ólafur Páll Gunnarsson hafði verið tæknimaður á Rás 2 í um fjögur ár áður en hann fékk tækifæri til að spreyta sig við hljóðnemann. Aðdragandinn var sá að hann kom upprifinn af Glastonbury-hátíðinni á Englandi árið 1995 eftir að hafa verið þar gestur BBC. Hann sá fjöldan allan af hljómsveitum og listamönnum spila: Plant & Page, Pulp, Oasis, Jeff Buckley, PJ Harvey, Verve, Supergrass o.fl.. Upp úr þessu fékk Óli Palli að prufa að gera tvo tveggja tíma langa þætti um Glastonbury-hátíðina (sem á þessum tíma var næstum algjörlega óþekkt fyrirbæri hér á landi) og í kjölfarið kom Rokkland.

Þátturinn var 50 mínútur til að byrja með en varð svo 110 mínútur rúmu ári eftir að hann fór af stað. Í dag eru liðin um 13 ár frá því þetta hófst, u.þ.b. 600 þættir eru að baki og fjöldi hljómsveita og listamanna sem hann hefur kynnt og fjallað um eru a.m.k. 1700. Óla reiknast það til að á þessum 13 árum hafi u.þ.b. 400 sólarhringar af lífi hans farið í Rokklandið.

Rokkland er á dagskrá Rásar 2 á sunnudögum frá kl. 16.10 – 18.00 og er svo endurtekið á þriðjudagskvöldum frá kl. 22.10 – 24.00. Þar fyrir utan er hægt að hlusta á vefnum www.ruv.is tvær vikur aftur í tímann.

,