Álfheiður Erla og Kunal Lahiry
Hljóðritun frá tónleikum sópransöngkonunnar Álfheiðar Erlu Guðmundsdóttur og píanóleikarans Kunals Lahiry sem fram fóru í Norðurljósum, Hörpu 10. maí 2026.

Tónleikaröðin ECHO Rising Stars er liður í verkefni sem Samtök evrópskra tónleikahúsa standa fyrir og veitir ungu og framúrskarandi tónlistarfólki færi á að koma fram í frábærum tónlistarhúsum víðs vegar um Evrópu.