Lestin

Lokaþættir sjónvarpsþátta og Skjaldborg

Kolbeinn Rastrick flytur seinni pistil sinn um heimildamyndahátíðina Skjaldborg sem fór fram um hvítasunnuhelgina. Ragnar Kjartansson í Moskvu, eina barnið í Grímsey, ónotaður fótboltavöllur á Hellisandi, eru meðal viðfangsefna myndanna sem voru sýndar á hátíðinni.

Við í Lestinni höfum verið í fráhvörfum eftir sjónvarpsþættirnir Succession og Afturelding luku göngu sinni um hvítasunnuhelgina. Í Aftureldingu voru helstu endar hnýttir en samt ekki nógu fast til loka fyrir möguleikann á framhaldi. Og Succession hefur fengið nánast einróma lof fyrir vel unninn lokaþátt þar sem áhorfendur fengu einhverskonar úrlausn. Í kjölfarið höfum við verið velta fyrir okkur eftirminnilegum lokaþáttum og hvernig er best ljúka sjónvarpsþáttaröðum. Davíð Már Stefánsson handritshöfundur og Elsa María Jakobsdóttir leikstjóri spjalla um það hvernig maður endar sjónvarpsseríu.

Frumflutt

5. júní 2023

Aðgengilegt til

5. júní 2024
Lestin

Lestin

Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og og speglar frá degi til dags.

Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.

,