Konungskantatan 1907

Frumflutt

17. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Konungskantatan 1907

Konungskantatan 1907

Árið 1907 kom Friðrik VIII Danakonungur í heimsókn til Íslands. Í tilefni af því samdi Sveinbjörn Sveinbjörnsson við texta eftir Þorstein Gíslason kantötu sem flutt var við móttökuna.

Hún var kölluð Konungskantatan og var eitt viðamesta tónverk sem Íslendingur hafði samið til þessa. Talið var ekki væri til hljóðritun af henni, en fyrir skömmu fannst í safni Ríkisútvarpsins hljóðritun sem gerð var árið 1957.

Hún verður flutt í þessum þætti: Dómkirkjukórinn syngur og Hljómsveit Ríkisútvarpsins leikur, en einsöngvarar eru Guðrún Á. Símonar og Þorsteinn Hannesson.

Kantatan hafði verið rangt skráð fyrir misskilning og því ekki fundist í spjaldskránni.

Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir

,