Í Keldudal með Elíasi á Sveinseyri
Viðtalsþáttur með Elíasi Þórarinssyni, bónda og skáldmenni á Sveinseyri í Dýrafirði. Farið er út í Keldudal, sem nú er í eyði, en Keldudalur er nokkru utar en Haukadalur, þar sem er sögusvið Gísla sögu Súrssonar. Elías fæddist á Hrauni í Keldudal, en bjó á Arnarnúpi, og var síðasti ábúandi í Keldudal. Kirkjan þeirra Kelddælinga stendur enn uppi á Hrauni, en hún hefur verið friðuð og það er í bígerð að flytja hana á Þjóðminjasafnið.
Elías lýsir byggðinni eins og hún var og fer með skáldskap eftir sig.
Umsjón: Finnbogi Hermannsson.
(Áður á dagskrá í nóvember 1987)