
Hreinsunareldur bókmenntanna
Í þremur þáttum verður litið á ritdóma sem hreinsunarathöfn innan bókmenntaheimsins í margvíslegum skilningi. Fjallað verður um ýmsa íslenska gagnrýnendur á fyrri hluta 20. aldar og leitast við að varpa annars vegar ljósi á almenn einkenni bókmenntagagnrýninnar og hins vegar á þær séríslensku aðstæður sem mótuðu þróun greinarinnar hér á landi á einum helsta uppgangstíma hennar.
Lesarar: Vigdís Másdóttir og Sigurður H. Pálsson.
Umsjónarmaður: Auður Aðalsteinsdóttir