
Hreindýr
Hreindýr hafa lifað á Íslandi frá því þau voru flutt inn í lok átjándu aldar. Síðan þá hafa þau aðlagast íslenskri náttúru og þykja nú órjúfanlegur hluti af hinni villtu náttúru Austurlands. Í þættinum er fjallað um sögu hreindýranna, kafað er ofan í samband manna og hreindýra, farið í heimsókn í hreindýragarð og slegið á þráðinn til hreindýraveiðimanna.
Viðmælendur: Skarphéðinn G. Þórisson, Unnur Birna Karlsdóttir, Björn Magnússon, Ásdís Sigríður Björnsdóttir, Fannar Magnússon, Sævar Guðjónsson og Kristín Lilja Eyglóardóttir.
Tónlistin er eftir Magnús Jóhann og Skúla Sverrisson.
Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.