Róbert Wessman ætlar ekki að leggja fram kæru á hendur Björgólfi Thor Björgólfssyni, þrátt fyrir að hann hafi ráðið einkaspæjara til þess að njósna um hann og fjölskyldu hans. Hann getur ekki hugsað sér að ræða við hann um málið.
Khan Younis, næststærsta borg Gaza, verður rýmd. Forsætisráðherra Ísraels segir að Ísraelar ætli sér yfirráð yfir öllu Gaza.
Áhrifa hitans síðustu daga gætir víða. Ástand vega er slæmt vegna bikblæðinga, gróður er skraufþurr, hætta er á gróðureldum. Hitinn hefur dregið dýr til dauða. Spáð er allt að tuttugu og þriggja stiga hita í dag.
Bretar fá aukinn aðgang að innri markaði Evrópusambandsins gegn því að framlengja fiskveiðiréttindi í breskri landhelgi. Leiðtogar Bretlands og ESB staðfestu samkomulagið á fundi í Lundúnum í morgun - þeim fyrsta sem haldinn er eftir Brexit.
Ekki verður farið í formlegar sameiningarviðræður Suðurnesjabæjar, Voga og Reykjanesbæjar. Þetta ákvað bæjarstjórn Suðurnesjabæjar samhljóða fyrr í maí.
Grindvíkingar geta gist í húsum sínum í sumar. Formaður íbúafélagsins vonar að það sé fyrsta skrefið að því að Grindvíkingar snúi aftur heim.