
Ástaróður til Sumars á Sýrlandi
Stuðmannaplatan Sumar á Sýrlandi kom út á sjálfan þjóðhátíðardaginn árið 1975. Platan fagnar því hálfrar aldar afmæli þann 17. júní í ár. Til að fagna þessum tímamótum mun Siggi Gunnars segja söguna á bakvið plötuna og fá til sín tvo aðdáendur hennar, þá Ara Eldjárn og Snorra Helgason, til þess að hlusta á og ræða um þessa geysivinsælu plötu, sem hefur haft mikil áhrif á íslenskt tónlistarlíf.
Umsjón og dagskrárgerð: Sigurður Þorri Gunnarsson
Álitsgjafar: Ari Eldjárn og Snorri Helgason
Þulir: Sigvaldi Júlíusson og Vera Illugadóttir