Álfar
Fjallað um álfa og huldufólk.
Rætt er við sjáandi mann sem ekki vill láta nafns síns getið.
Einar Örn Stefánsson les: Úr þjóðsögum Jóns Árnasonar, I bindi bls. 10, 25, 32 o.fl. Einnig lesið úr II bindi bls. 28.
Lesið er úr bók Jónasar Þorbergssonar: Líf að loknu þessu. Bls. 61 og 68.
Leikin eru lög af plötunni Álfar með Magnúsi Þór Sigmundssyni.
Umsjón: Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir.
(Áður á dagskrá 5. janúar 1980)