
Útvarpsfréttir.


Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Harpa hefur heldur betur fest sig í sessi sem eitt helsta kennileiti Reykjavíkur og miðstöð menningar og mannlífs í hjarta miðborgarinnar. Á síðasta ári sóttu 1,6 milljónir gesta Hörpu og haldnir voru 1.300 viðburðir í húsinu. Alls fóru fram 846 tónleikar og listviðburðir á árinu með þátttöku bæði íslenskra og erlendra listamanna. Ásta Ólafsdóttir, sviðsstjóri viðburða- og markaðssviðs Hörpu,mætti í Morgunútvarpið og spjallaði við okkur um þetta merkilega hús.
Ef það kemur til alvarlegra átaka gæti Ísland misst aðgang að skipunum sem flytja matvæli, lyf og aðrar birgðir til landsins án lagalegrar heimildar til íhlutunar. Af hverju? Öll skip íslenskra útgerða sigla undir erlendum fánum, t.d. færeyskum, norskum, eða hollenskum, þrátt fyrir að yfir 90% af vöruviðskiptum Íslands berist sjóleiðis. Eldsneyti, matvæli, lyf og byggingarefni berast því nær eingöngu með skipum sem Ísland hefur enga lögsögu yfir. Varða er hugveita sem miðar að því að efla þjóðaröryggi og viðnámsþrótt Íslands og gaf í gær út skýrslu þar sem kemur meðal annars fram að engin kaupskip séu skráð á Íslandi. Kristinn Lár Hróbjartsson frá Vörðu kom í Morgunútvarpið og fræddi okkur um þessa hrollvekjandi staðreynd.
Halla Tómasdóttirvar kjörin forseti Íslands 1. júní árið 2024 og tók formlega við embætti 1. ágúst sama ár. Hún er önnur konan til að gegna embættinu. Síðan að Halla tók við embætti hefur ófriður geisað víða um heim, sem hefur haft mikil áhrif á alla heimsbyggðina. En hvernig heldur Halla í gleðina og vonina í þessari ringulreið sem heimsmálin eru? Forseti Íslands mætti í Morgunútvarpið.
Eftirmál er vinsælt hlaðvarp sem varð síðar sjónvarpsþáttur þar sem fyrrverandi fréttakonurnar Þórhildur Þorkelsdóttir og Nadine Guðrún Yaghi rifja upp áhugaverð fréttamál og fjalla um þau á mannlegum nótum. Nú vinna þær að nýrri þáttaröð og leita að áhugaverðum málum til að fjalla um. Við fengum þær í heimsókn í spjall um Eftirmál.

07:30

Útvarpsfréttir.

08:30


Létt spjall og lögin við vinnuna.



Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Útvarpsfréttir.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.



Útvarpsfréttir.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.


Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Ólafur Páll Gunnarsson spilar tónlist að sínum hætti - hitt og þetta og þetta og allt í bland.

Fréttastofa RÚV.

Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.


Umsjón: Andrea Jónsdóttir.