
Bæn og hugleiðing að morgni dags.


Fjallað er um vesturíslenska skáldið og háðfuglinn Kristján Níels Júlíus Jónsson, sem kallaði sig Káinn. Sagt er frá kveðskap hans, lesið úr Vísnabók Káins og fjölmörg lög við kvæði hans flutt. Lesarar auk umsjónarmanns eru Margrét Helga Jóhannsdóttir og Sigurður Skúlason.
Umsjón: Sigurður Hróarsson.
(Áður á dagskrá 1989)

Útvarpsfréttir.

Ævar Kjartansson glímir við eðli trúarinnar, einkum þær áherslur sem Páll postuli og Lúther lögðu á mikilvægi þess að trúa á dauða og upprisu Krists fremur en siðferðileg fordæmi, krossfestinguna frekar en Fjallræðuna.
Ævar Kjartansson ræðir við Rúnar Þorseinsson prófessor í Nýjatestamentisfræðum um Pál postula og Rómverjabréf hans.


Umsjón: Kristján Kristjánsson.


frá Veðurstofu Íslands.

Í um 400 ár hafa ábúendur á Loftsstöðum notið sérstakrar verndar Galdra-Ögmundar.
Þau varðveita úr honum annan lærlegginn í lítilli glerkistu undir bókaskáp, og svo lengi sem beinið er á jörðinni ver það þau Tyrkjaránum, sjóskaða, náttúruhamförum og hvers konar mannraunum. En ein er sú vá sem enginn gat séð fyrir…
Þjóðsögur, flókin fjölskyldusambönd og erfðir mætast í þremur þáttum þar sem uppljóstrað er um rúmlega 70 ára gamalt leyndarmál.
Umsjón: Anna Marsibil Clausen
Í miðri leit að uppruna lærleggjanna, berast Sigrúnu nýjar upplýsingar um uppruna sinn.

Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.

Tónlist héðan og þaðan

Íslenskt lag eða tónverk.

Útvarpsfréttir.

Illugi Jökulsson gramsar í safnakosti Ríkisútvarpsins.
Bergsteinn Jónsson og Björn Th. Björnsson flytja ýmsan fróðleik um sögu ASÍ og kynningar. Gísli J. Ástþórsson blaðamaður tekur viðtal við Jónas Jónsson frá Hriflu. Stefán Jónsson fréttamaður tekur viðtal við Ottó N. Þorláksson fyrsta forseta ASÍ. Guðgeir Magnússon blaðamaður spjallar stuttlega um gildi vinnunnar og tekur síðan viðtöl við Ingibjörgu Guðmundsdóttur húsfreyju og verkakonu og Ólaf Davíðsson sjómann.

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Þróunaraðstoð hefur dregist mikið saman undanfarið og í raun aldrei minna en á nýliðnu ári. Þjóðir heims forgangsraða þessari aðstoð sífellt aftar á listann. Mest munar þarna um Bandaríkin, sem hafa dregið saman seglin þegar þróunaraðstoð er annars vegar um eina 24 milljarða. Þýskaland, Frakkland, Bretland, Holland, Belgía, Sviss og Svíþjóð hafa gert það sömuleiðis. Og afleiðingar þessara ákvarðana geta haft mikil áhrif á líf fjölda jarðarbúa. Hallgrímur Indriðason fjallar um málið og ræðir við framkvæmdastjóra Mannfjöldastofnunar Sameinuðu þjóðanna.
Það eru að verða 30 ár síðan Harry Potter leit fyrst dagsins ljós í bókinni Harry Potter og Viskusteinninn. Um jólin verða nýir sjónvarpsþættir frumsýndir sem segja söguna upp á nýtt, eins og hún birtist í bókum J.K. Rowling. Ekki eru þó allir á eitt sáttir með nýju þættina og með Rowling almennt. Hún hefur á síðustu árum stundað mótmæli gegn réttindabaráttu trans fólks, einkum og sér í lagi trans kvenna, sem hún segir að sé rekin á kostnað kvenna. Mörgum aðdáendum er svo gróflega misboðið að þeir hafa hætt með öllu að samsama sig galdraheimi Rowling og öllu því sem hún hefur skapað. Oddur Þórðarson fjallar um málið.

Í Kúrs gerast nemendur við Háskóla Íslands dagskrárgerðarmenn; segja sögur, kafa í fræðin og spyrja spurninga. Leiðbeinendur: Þorgerður E. Sigurðardóttir og Anna Marsibil Clausen.
Í þessum þætti ferðumst við aftur til ársins 2024 og í ferðalag um Bandaríkin. Uppleggið að ferðalaginu var pólitísk forvitni en þegar upp var staðið, sat eitthvað allt annað eftir.
Umsjón: Nanna Guðrún Sigurðardóttir

Árið 1903 hlaut Niels Ryberg Finsen Nóbelsverðlaun fyrir rannsóknir sínar á ljósmeðhöndlun við hörundsberklum og öðrum sjúkdómum. Hann var fyrsti danski handhafi Nóbelsverðlaunanna sem þá voru nýtilkomin og vegna sérsviðs síns var hann gjarnan kallaður ljóslæknirinn. Uppruni Finsens teygir sig þó líka til Færeyja, þar sem hann fæddist, og til Íslands en á hann rætur að rekja til Íslands í föðurætt auk þess sem hann bjó hér um nokkurt skeið og lauk stúdentsprófi frá Lærða skólanum sem þá hét.
Í aðalbyggingu Menntaskólans í Reykjavík er enn minnisvarði um námsár Finsens. Þrátt fyrir það er hann mörgum Íslendingum gleymdur og í þessum þætti verður hans minnst, fjallað um tengslin við Ísland, námsárin og afrekin á sviði læknavísinda.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson

Útvarpsfréttir.

Örn Elías Guðmundsson, eða Mugison - er einn af okkar ástsælustu tónlistarmönnum og hefur samið og gefið út margar af þekktustu perlum síðari ára. Á Ariwaves hátíðinni í fyrra steig hann í fyrsta sinn á svið með Sinfóníuhljómsveit Íslands og fór með hjómsveitinni í gegnum tónlistarferilinn sem litast af tilfinningum, dýpt, óvæntum beygjum og einstökum hljóðheimi.
Stjórnandi: Bjarni Frímann Bjarnason.
Hljóðritun frá tónleikum í Eldborg, Hörpu, nóvember 2025.
Um upptöku sá Georg Magnússon, hljóðmeistari útvarpsins.

Steinunn Harðardóttir fjallar um sagnalist og sögumenn. Sagnalist er gömul listgrein sem fylgt hefur manninum um aldaraðir. Sögumenn hafa ávallt verið aufúsugestir og veitt kærkomna afþreyingu. Í þáttunum Sögum og sagnalist mun Steinunn ræða við nokkra sagnamenn nútímans, einn í hverjum þætti.
Þættirnir voru áður á dagskrá árið 2005
Í þættinum er rætt við Sigurbjörgu Karlsdóttur um sagnalistina og áhuga fólks fyrir álfum og huldufólki, og þá ekki síst erlendra ferðamanna. Síðan er haldið með henni í gönguferð á vit álfa í álfabyggðum Hafnarfjarðar.

Fréttir

Inga Huld Hákonardóttir gerði þættina um konur og kristni árið 1994.
Þriðji þáttur:
Í þættinum er sagt frá Vestu og meyjum hennar, Demetru hinni grísku og Ísis hinniegypsku.
Lesari með umsjónarmanni er Kristján Árnason sem jafnframt hefur þýtt hluta frásagnanna.

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.
Tónlist frá ýmsum tímum úr ólíkum héruðum Djasslandsins. Íslenskt og erlent í bland.
Pétur Grétarsson ræðir við Harald Ægi Guðmundsson bassaleikara og tónsmið um hvernig plöturnar hans verða til og hvað drífur hann í tónlistinni.
Tónlistin í þættinum er öll eftir Harald Ægi:
Camino a la Cumbea
Along the river
Svefndans
Dance with me
When it Rains
Líkt og stöndum hér
Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir
Þótt orðið ske sé lítil þúfa hefur hún oft velt þungu hlassi og í áratugi hefur verið tekist á um ágæti hennar.
Árni Böðvarsson talaði um orðin ske og heldur í þættinum Daglegu málið árið 1955 og í öðrum þætti gerði hann íslenskun erlendra örnefna og staðaheita að umtalsefni.

Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
Hjördís Smith segir frá sínu uppáhalds tónverki.
Hamrahlíðarkórinn syngur Requiem eftir Jón Leifs. Einnig leikur Sinfóníuhljómsveit Íslands Hughreistingu, intermezzo fyrir strokhljómsveit, op.66, eftir Jón Leifs, undir stjórn Osmo Vanska.

Í Sagnaslóð er víða leitað fanga. Sagt er frá mönnum og málefnum fyrri tíma. Umsjónarmenn: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson
Þættir frá vetrinum 2008-2009
Í þættinum er lesið úr bók Tryggva Emilssonar Fátækt fólk um unglingsár hans í Öxnadal og baráttu við fátæktina . Lesari með umsjónarmanni Bryndís Þórhallsdóttir. Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson


frá Veðurstofu Íslands

Svanhildur Óskarsdóttir les sálmana í hljóðritun frá árinu 1998.
Árið 1944 var tekinn upp sá siður hjá Ríkisútvarpinu að lesa alla Passíusálma Hallgríms Péturssonar á föstunni.

Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.
Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.
Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.
Söngsveitir flytja Doo-Wop lög.

Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.

Útvarpsfréttir.


Útvarpsfréttir.

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.
Fram og til baka er víðförull þáttur og í þessari sérstöku páskaútgáfu tyllum við niður fæti í höfuðborg Tævan, Taipei. Felix Bergsson segir okkur af upplifun sinni af þessari mögnuðu eyju og fólkinu sem þar býr.
Gestur þáttarins, Þorsteinn Kristinsson stjórnmálafræðingur, býr einmitt í Taipei ásamt eiginkonu og nýfæddum syni. Þorsteinn, eða Stenni eins og hann er yfirleitt kallaður, segir okkur af sjálfum sér, uppvextinum í Hafnarfirði og lífinu í Taiwan en víkur einnig að áhugaverðri sögu landsins, sambandinu við Kína og stjórnmálunum.
Komið með þegar við flökkum í orðsins fyllstu merkingu fram og til baka



Gísli Marteinn Baldursson og Sandra Barilli leiða hlustendur inn í laugardaginn, taka stöðuna á fólki og fréttum, spila góða tónlist og fá til sín vel valda gesti í skemmtilegt spjall.

Útvarpsfréttir.

Helgarútgáfan slær taktinn með þjóðinni á laugardögum. Kristján Freyr setur puttann á púlsinn, skrunar yfir allt það skemmtilega sem er á sveimi í menningu og mannlífi, gestir mæta með margs konar meðmæli og taktviss topptónlist fær að hljóma.

Tæplega fimmtíu ára tónlistarferill Bubba Morthens krufinn til mergjar í tali og tónum í tilefni af sjötugsafmælisárinu. Boðið upp á fágætar tónleikaupptökur, viðtöl og umfjallanir um tónlist og texta Bubba sem sumar hverjar hafa ekki heyrst í áraraðir á öldum ljósvakans.
Umsjón: Ásgeir Eyþórsson
Í þriðja þætti eru árin 1982-1985 til umfjöllunar og þar koma m.a. við sögu Bubba-plöturnar Fingraför og Ný spor og hljómsveitirnar Egó og Das Kapital. Í þættinumn má m.a. heyra valdar klippur úr eftirtöldum útvarpsþáttum: Árið er, Ber er hver að baki, Bubbi segir sögur, Geymt en ekki gleymt og Rokkland.
Viðmælendur í þriðja þætti eru Bubbi Morthens, Jakob Smári Magnússon og Magnús Þór Jónsson (Megas).
Viðtöl: Freyr Eyjólfsson, Gunnlaugur Jónsson, Karl Hallgrímsson og Ólafur Páll Gunnarsson.
Aðstoð við textagerð: Jónatan Garðarsson.
Lagalisti:
Egó - Dauðakynslóðin
Egó - Í spegli Helgu
Egó - Fjöllin hafa vakað
Egó - Við trúðum blint
Egó - Mescalin
Bubbi - Grænland
Bubbi - Svartur afgan
Bubbi - Afgan
Bubbi & Megas - Fatlafól
Bubbi & Megas – Heilræðavísur
Bubbi – Lög og regla
Bubbi - Hvernig getur staðið á því?
Bubbi & Gunnar Reynir Sveinsson - Maður hefur nú
Bubbi - Litli hermaðurinn
Egó - Blýhöfuð
Egó - III heimurinn
Egó - Reykjavík brennur
Bubbi - Syndandi í hafi móðurlífsins
Bubbi - Strákarnir á Borginni
Bubbi - Þeir ákveða hvað er klám
Das Kapital - Launaþrællinn
Das Kapital - Snertu mig
Das Kapital - Leyndarmál frægðarinnar
Das Kapital - Svartur gítar
Das Kapital - Blindsker
Das Kapital - Lili Marlene

Útvarpsfréttir.

Hvernig hljómaði vikan? Ragga Holm og Vilborg fara yfir 30 vinsælustu lög vikunar á Rás 2, alla laugardaga frá 16-18. Þær rifja upp vikuna, líta í baksýnisspegilinn og skoða smelli fyrri tíma, spá fyrir um hvaða lög eru líkleg til vinsælda. Skemmtilegt spjall og fróðleikur í bland, en fyrst og fremst frábær tónlist.
Umsjón: Ragga Holm og Vilborg Kristín Þrastardóttir.

Fréttir

Matthías Már spilar létta tóna í eldhúsinu um páska.

Fréttastofa RÚV.

Bein útsending frá tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður.
