Bæn og hugleiðing að morgni dags.
Séra Arnór Bjarki Blómsterberg flytur.
Útvarpsfréttir.
Í þættinum verður ferðast á fáfarnar en áhugaverðar slóðir vítt og breitt um veröldina. Saga hvers staðar verður rakin og tónlist tengd honum leikin. Í hverjum þætti verður rætt við fólk sem hefur ferðast um viðkomandi land og það segir frá þeim áhrifum sem það varð fyrir af náttúru og menningu. Netfang þáttarins: <a href="mailto:magnusre@ruv.is">magnusre@ruv.is</a>
Umsjón Magnús R. Einarsson. Þættirnir eru einnig á Hlaðvarpi Rúv <a href="http://www.ruv.is/podcast"> HLAÐVARP RÚV</a>
Bergrós Arna Jóhannesdóttir átti sér draum um að læra á brimbretti. Hún lét þann draum ræasta þegar hún fór í ferðalag til Suður Ameríku og þar á meðal á brimbrettaskóla í Costa Rica. Hún segir frá þessu ævintýri sínu í þessum þætti Hringsólar. Umsjón: Magnús R. Einarsson.
Útvarpsfréttir.
Umsjón: Bjarni Rúnarsson
Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
Í þættinum verður leikin tónlist eftir Carl Maria von Weber. Árið 1808 samdi hann sönglag sem hann tileinkaði söngkonunni Gretchen Lang, en hann var ástfanginn af henni. Gretchen söng aðalhlutverkið í óperu Webers, „Silvana“, tveimur árum síðar. En hún endurgalt ekki tilfinningar Webers og hann sneri sér að annarri söngkonu, Caroline Brandt, sem einnig fór með hlutverk í „Silvana“. Caroline giftist Weber og hann tileinkaði henni verk sitt „Boðið upp í dans“ sem flutt verður í þættinum. Einnig verður leikinn fagottkonsert í F-dúr sem Weber samdi árið 1811. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
Útvarpsfréttir.
Þröstur Helgason ræðir við forvitnilegt fólk um reynslu þess og viðhorf.
Þröstur Helgason ræðir við forvitnilegt fólk um reynslu þess og viðhorf. Gestur þáttarins er?Sverrir Norland, rithöfundur. Sverrir sendi nýlega frá sér bók sem heitir Stríð og kliður en þar tekst hann meðal annars á við það hvers vegna og hvernig hann ætti að skrifa bókmenntir á tímum þegar heimsbyggðin stendur frammi fyrir tröllauknum áskorunum í umhverfis ? og loftslagsmálum, útrýmingu dýrategunda, yfirtöku tækninnar á lífi okkar og samþjöppun auðs á fárra hendur. Rætt er við Sverri um bókina en hann er jafnframt spurður út í bókmenntir á 21. öld, fagurfræði á tímum þegar afþreyingin ræður ríkjum, umfjöllunarefni skáldskaparins, áhrifavalda hans, lestur og aðra menningarneyslu.
Útvarpsfréttir.
Rætt við gesti þáttarins um bók vikunnar.
Umsjónarmenn eru Auður Aðalsteinsdóttir, Jórunn Sigurðardóttir, Jóhannes Ólafsson og Halla Harðardóttir.
Bók vikunnar er Meðgönguljóð - úrval, þar sem er að finna valin ljóð úr ljóðabókum sem komu út undir merkjum Meðgönguljóða á árunum 2012 til 2018. Bækurnar eru alls þrjátíu og þrjár talsins og eru eftir þrjátíu og tvo höfunda.
Guðsþjónusta.
Séra Sveinn Valgeirsson þjónar.
Séra Elínborg Sturludóttir predikar.
Organisti og kórstjóri: Kári Þormar.
Kammerkór Dómkirkjunnar syngur.
Ólafur Hjálmarsson og Thor Aspelund lesa ritningarlestur.
Fyrir predikunÞ
Forspil: Allegro úr concerto Bwv 593 eftir Bach og Vivaldi.
Sálmur 335. Guðs helgur andi, heyr os nú. Lag frá miðöldum. Texti: Martin Luther, þýðandi Helgi Hálfdánarson.
Ubi caritas eftir Ola Gjeilo er sungið á milli lestra
Sálmur 25. Englar hæstir, andar stærstir. Lag: Þorkell Sigurbjörnsson. Texti: Matthías Jochumsson.
Sálmur 171. Skín á himni skír og fagur hinn skæri hvítasunnudagur. Lag: Philipp Nicolai. Texti: Valdimar Briem.
Eftir predikun:
Sálmur 724. Leiftra þú sól, þér heilsar hvítasunna. Lag: Jón Ásgeirsson. Texti: Sigurbjörn Einarsson.
Sálmur 862. Heilagi andi, hjálp mín trú. Lag: Michael Bojesen. Texti: Sigurbjörn Einarsson.
Eftirspil: Preludium í a moll Bwv 543.
Hádegisútvarp í umsjón þular.
Útvarpsfréttir.
Hraun rennur nú yfir báða varnargarðana sem komið var upp til að verja Nátthaga fyrir hraunflæði úr eldstöðvunum í Geldingadal. 65 dagar eru síðan gosið hófst og virknin helst stöðug.
Þriðja daginn í röð greindist ekkert innanlandssmit hér á landi. Það hafði ekki gerst í rúma tvo mánuði.
Fyrstu Danirnir fengu bóluefni Jansen í morgun, en notkun þess var hætt í apríl vegna mögulegra aukaverkana. Færeyingar íhuga að herða sóttvarnir vegna hópsýkingar, þeirrar fyrstu þar á þessu ári.
Eldgos hófst í fjallinu Nyirangongo í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó í gærkvöld. Fimm hafa látist í slysum tengdu gosinu og þúsundir lagt á flótta.
Formaður Starfsgreinasambandsins segir sveitarfélög sniðganga kjarasamninga með því að nýta ekki heimildaákvæði um styttingu vinnuvikunnar. 13 mínútna stytting á dag sé ekki eina útfærslan sem sé í boði.
Daði Freyr Pétursson segir að hann og Gagnamagnið hefðu rústað Eurovision-keppni gærkvöldsins hefðu þau fengið að stíga á svið. Þau lentu í fjórða sæti en ítalskt glysrokk bar sigur úr býtum.
Keflavík varð í gær fyrsta liðið til að komast í undanúrslitin um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta. Undanúrslitin um Íslandsmeistaratitil kvenna í handbolta hefjast í dag.
Í þáttunum er fjallað um prentverk Jóhannesar Gutenbergs, uppfinningu sem markaði tímamót í sögunni. Sjónum er beint að menningarumhverfi og hugarheimi uppfinningamannsins sjálfs og því samfélagi miðalda sem tilraunir hans með pappír, letur, blek og pressur gjörbreyttu á skömmum tíma.
Umsjón: Óskar Völundarson.
Karlmenn einir á ferð.
Sígildir ljóðasöngvar fjalla oft um karlmann sem er einn á ferð, og má þar minna á „Wanderer“-söngva Schuberts og söngvaflokk hans, „Vetrarferðina“. En hve margir söngvar skyldu vera til um konur einar á ferð? Í þessum tveimur þáttum verður fjallað um hinn einmana förumann, eins og hann birtist í ljóðasöngvum, og leitað að hliðstæðum söngvum um konur. Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
Karlmenn einir á ferð.
Sígildir ljóðasöngvar fjalla oft um karlmann sem er einn á ferð, og má þar minna á „Wanderer“-söngva Schuberts og söngvaflokk hans, „Vetrarferðina“. En hve margir söngvar skyldu vera til um konur einar á ferð? Í þessum tveimur þáttum verður fjallað um hinn einmana förumann, eins og hann birtist í ljóðasöngvum, og leitað að hliðstæðum söngvum um konur. Lesari er Valur Freyr Einarsson. Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
Á þessum myrkasta tíma ársins er vert að leiða hugann að ljósinu og manninum sem færði okkur það undur sem ljósaperan er. Í þættinum rekur Snorri Rafn Hallsson sögu Thomasar Edisons og þessarar merkilegu uppfinningar.
Viðmælandi: Baldur Arnarson.
Hamfarahlýnun jarðarinnar skrifast að miklu leyti á umframmagn gróðurhúsalofttegunda í andrúmsloftinu. Það er ekki nóg að draga úr losun, við þurfum að hreinsa upp eftir okkur. Í þættinum skoða Tómas og Snorri jarðmótun, sem eru markvissar, stórtækar og ekki síst stórhuga aðgerðir til að hafa áhrif á loftslag jarðarinnar og kynnast náttúrulegum og tæknilegum aðferðum við föngun og förgun kolefnis.
Rætt er við Sigurð Reyni Gíslason, jarðfræðing og Söndru Ósk Snæbjörnsdóttur, yfirmann koldíoxíðsförgunar hjá CarbFix.
Umsjón: Tómas Ævar Ólafsson og Snorri Rafn Hallsson.
Hljóðritun frá fjölskyldutónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands sem fram fóru i Eldborgarsal Hörpu 15. maí sl.
Á efnisskrá er tónlist eftir Thorbjörn Egner úr sögum hans Kardemommubænum og Dýrunum í Hálsaskógi í nýjum útsetningum Jóhanns G. Jóhannssonar.
Gestgjafar í skemmtilegu ferðalagi til Kardimommubæjar og Hálsaskógar eru leikarararnir og söngvararnir Jóhanna Vigdís Arnardóttir, Pálmi Gestsson, Valur Freyr Einarsson og Sigurður Þór Óskarsson ásamt Skólakór Kársness og stjórnandi er Daníel Bjarnason.
Gestur þáttarins er myndlistarkonan og heimshornaflakkarinn Mireya Samper. Umsjón: Margrét Blöndal. Ljósmynd: Ómar Sverrisson.
Kvöldfréttir útvarps
Umsjón: Bjarni Pétur Jónsson
Tæknimaður: Gísli Kjaran Kristjánsson
Sagt er frá einstaka fólki sem jarðsett er Hólavallagarði, gamla kirkugarðinum við Suðurgötu. Í hverjum þætti er staldrað við tvö leiði og rakin ævi þeirra sem þar hvíla.
Umsjón: Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir.
Í þessum þætti segir frá Guðrúnu Oddsdóttur (1779-1838), vökukonu garðsins og Sveinbirni Sveinbjörnssyni (1847-1927) tónskáldi. Sagt er meðal annars frá því hvernig þau tvö tengdust og valin atriði dregin fram sem veita ákveðna innsýn í líf þeirra.
Umsjón: Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir.
Dánarfregnir.
Umsjón: Svanhildur Jakobsdóttir.
Sigurlaug Margrét Jónasdóttir tekur á móti góðum gestum í útvarpssal.
Leitað fanga í segulbandasafni Ríkisútvarpsins. Umsjón: Gunnar Stefánsson.
Sveinn Skorri Höskuldsson flytur ljóðarabb og fjallar um ljóð eftir Jóhann Sigurjónsson. Áður flutt 1986. Umsjón: Gunnar Stefánsson.
Umsjón: Kristján Kristjánsson.
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Illugi Jökulsson les úr hinum skorinorðu æviminningum Reinalds Kristjánssonar (1866-1940), Á sjó og landi. Að þessu sinni segir frá sjómennsku og póstferðum, deilum við mann og annan og svo segir Reinald frá kvennamálum sínum.
Næturútvarp Rásar 1.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Umsjón: Bjarni Rúnarsson
Umsjón: Atli Már Steinarsson.
Tvo síðustu þætti höfum við fjallað um loftslagið okkar og umhverfi en við vendum okkar kvæði nú í kross og færum okkur yfir á fjármálamarkaðinn. Nánar tiltekið hlutabréf. Ég vildi að ég gæti útskýrt fyrir ykkur minn skilning á því fyrirbæri en hann er því nánast lítill sem enginn. Þetta er mér og mörgum öðrum fjarlægur heimur þar sem öskrandi fólk kaupir og selur allan daginn og einhvernveginn endar fólk með mismikla peninga í höndunum. Stundum sturlaðar fjárhæðir en einnig tóma vasa og sárt enni. Ég fékk Sigurð B Stefánsson til mín til að útskýra betur fyrir okkur um hvað þetta snýst allt.
Útvarpsfréttir.
Jón eigrar um akra tónlistarinnar, léttstígur og viljugur með skemmtilega fróðleiksmola í farteskinu.
Íslensk tónlist spilar yfirleitt stórt hlutverk. Þægilegur og laufléttur morgunþáttur í umsjón frumherja Rásar 2.
Umsjón: Jón Ólafsson
Meðal annarra tónlistarflytjenda: Gróa, José Feliciano, Blake Mills, Ragnheiður Gröndal & Guðmundur Pétursson
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Hraun rennur nú yfir báða varnargarðana sem komið var upp til að verja Nátthaga fyrir hraunflæði úr eldstöðvunum í Geldingadal. 65 dagar eru síðan gosið hófst og virknin helst stöðug.
Þriðja daginn í röð greindist ekkert innanlandssmit hér á landi. Það hafði ekki gerst í rúma tvo mánuði.
Fyrstu Danirnir fengu bóluefni Jansen í morgun, en notkun þess var hætt í apríl vegna mögulegra aukaverkana. Færeyingar íhuga að herða sóttvarnir vegna hópsýkingar, þeirrar fyrstu þar á þessu ári.
Eldgos hófst í fjallinu Nyirangongo í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó í gærkvöld. Fimm hafa látist í slysum tengdu gosinu og þúsundir lagt á flótta.
Formaður Starfsgreinasambandsins segir sveitarfélög sniðganga kjarasamninga með því að nýta ekki heimildaákvæði um styttingu vinnuvikunnar. 13 mínútna stytting á dag sé ekki eina útfærslan sem sé í boði.
Daði Freyr Pétursson segir að hann og Gagnamagnið hefðu rústað Eurovision-keppni gærkvöldsins hefðu þau fengið að stíga á svið. Þau lentu í fjórða sæti en ítalskt glysrokk bar sigur úr býtum.
Keflavík varð í gær fyrsta liðið til að komast í undanúrslitin um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta. Undanúrslitin um Íslandsmeistaratitil kvenna í handbolta hefjast í dag.
Umsjón: Ýmsir.
Gígja Hólmgeirsdóttir ræðir við söngkonuna Kristjönu Arngrímsdóttur í hljóðveri á Akureyri. Kristjana sagði frá uppvextinum á Dalvík og þegar hún kynntist ástinni á æfingum hjá Leikfélagi Dalvíkur. Hún segir einnig frá söngferlinum, fjölskyldulífinu og nýju plötunni sem nú er í vinnslu, en þar stígur Kristjana fram sem lagahöfundur.
Umsjón: Andrea Jónsdóttir.
Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og í haust er 21 ár liðið síðan hann fór fyrst í loftið.
Í Rokklandi í dag förum við í seinni hlutanum á útvarpstónleika í Franska Ríkisútvarpinu með ensku tónlistarkonunni Arlo Parks sem var fyrir skemmstu valin nýliði ársins á Bresku tónlistarverðlaununum ? og hún er bókuð á Iceland Airwaves í haust.
Við heyrum nýja músík með fólki eins og Manic Street Preachers, Son Volt, The Mountain Goats og Margo Price og Bob Dylan sem verður 80 ára á morgun kemur aðeins við sögu.
En fyrst er það Breski tónlistarmaðurinn Paul Weller sem var að senda frá sér enn eina plötuna og það er ekki komið ár síðan hann gaf síðast út plötu. Nýja platan heitir Fat Pop Volume One, fór beint í toppsæti breska vinsældalistans og situr þar núna. Fat Pop er 8 platan hans sem nær toppsæti breska vinsældalistans en sólóplöturnar hans eru orðnar 16. Hann hefur í það heila komið 22 plötum inn á topp 10 í Bretlandi en þá er allt talið með, líka plötur hljómsveitanna hans, The Jam og Style Council.
Kvöldfréttir útvarps
Umsjón: Bjarni Pétur Jónsson
Tæknimaður: Gísli Kjaran Kristjánsson
Létt tónlist af ýmsu tagi.
Umsjón: Rósa Birgitta Ísfeld.
Fréttastofa RÚV.