Skjálfti 2024
Skjálftinn er hæfileikakeppni ungmenna í grunnskólum á Suðurlandi sem fór fram í fyrsta sinn í maí 2021 og er haldinn í fjórða sinn í nóv. ´24.
Atriði Grunnskólans í Þorlákshöfn heitir Hvað ef? Það fjallar um ADHD og allt áreitið sem því fylgir. Við fylgjumst með skóladegi í lífi ungrar stelpu sem á það til að sóna út í tíma, á erfitt með að halda athygli og dreymir dagdrauma um hvernig lífið væri ef hún væri strákur, ef hún væri fræg eða ef engum þætti vænt um hana.

Skjálfti á Suðurlandi er hæfileikakeppni ungmenna í grunnskólum á Suðurlandi, byggð á Skrekk sem haldinn hefur verið í Reykjavík í áratugi.