• 00:00:22Barnaverndarstofa og Bakkakot
  • 00:15:40Breyttar varnir

Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Bakkakot, breyttar varnir

Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu 1995-2018, segist fyrst hafa heyrt af tilvist fósturheimilisins Bakkakots í umfjöllun Kveiks fyrir hálfum mánuði. Fjöldi manna, sem sendir voru í Bakkakot sem börn, hafa lýst grófu ofbeldi sem þeir urðu fyrir að hálfu húsfreyjunnar á bænum og annarra. Málið hefur brugðið ljósi á ýmsar brotalamir í barnaverndarkerfinu. Bragi er gestur Kastljóss.

Orrustuþotur frá þremur ríkjum voru við æfingar hér á landi um helgina. Þær eru hluti af verkefni sem NATO blés til í síðustu viku. Heimurinn í kringum okkur tekur hröðum breytingum þessa dagana, með afleiðingum sem ekki sér fyrir endann á, meðal annars hervæðingu.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.

Þættir

,