Fangar
Leikin íslensk þáttaröð í sex hlutum í leikstjórn Ragnars Bragasonar. Líf Lindu og fjölskyldu hennar umturnast þegar hún er færð í kvennafangelsið í Kópavogi eftir að hafa ráðist á föður sinn, þekktan mann úr viðskiptalífinu. Í fangelsinu hittir Linda fyrir aðrar konur sem hafa farið út af sporinu og myndar sambönd sem hafa örlagarík áhrif á líf hennar. Með aðalhlutverk fara: Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir Dýrfjörð, Nína Dögg Filippusdóttir, Unnur Ösp Stefánsdóttir, Kristbjörg Kjeld og Halldóra Geirharðsdóttir. Framleiðsla: Mystery Productions. Atriði í þáttunum eru ekki við hæfi ungra barna.