Vaknað á Mars
Réveil sur Mars
Heimildarmynd frá 2020 eftir Deu Gjinovci. Tíu ára drengur flýr ásamt fjölskyldu sinni frá Kósóvó til Svíþjóðar vegna ofsókna í heimalandinu. Systur hans þróa með sér svokallað mjallhvítarheilkenni og falla í dá í langan tíma í senn. Drengurinn reynir að átta sig á breyttum aðstæðum og dreymir um að smíða geimskip til að komast í burtu frá erfiðleikunum.