
Umbreyting - Frelsið kemur innan frá
Forvandlingen - frihed kommer indefra
Dönsk heimildarmynd frá 2023 um Bastian og Max sem eru að stíga inn í unglingsárin og þurfa að taka stórar ákvarðanir. Max er nýkominn út sem trans maður og Bastian var úthlutað karlkyni við fæðingu en upplifir sig sem stúlku. Þau íhuga bæði lyfjameðferð til að stöðva kynþroskann en Bastian er hikandi við að taka óafturkræfar ákvarðanir fyrir framtíðina.