
Sumartónleikar í Schönbrunn
Summer Night Concert Schönbrunn
Upptaka frá sumartónleikum Vínarfilharmóníunnar sem haldnir voru í Schönbrunn-hallargarðinum í Vínarborg 13. júní síðastliðinn. Stjórnandi er Tugan Sokhiev. Tenórinn Piotr Beczala syngur. Á efnisskránni eru meðal annars verk eftir Johann Sebastian Bach, Georges Bizet, Edvard Grieg, Antonín Dvořák og Giacomo Puccini.