
Sumarbörn
Íslensk fjölskyldumynd um systkinin Eydísi og Kára sem eru send á afskekkt barnaheimili vegna erfiðra heimilisaðstæðna og fátæktar. Börnin trúa því statt og stöðugt að dvölin verði stutt, en biðin veldur þeim síendurteknum vonbrigðum. Dagarnir líða og Eydísi tekst að yfirstíga hverja hindrunina á eftir annarri með sinni einstöku ráðsnilld, dugnaði og umhyggju fyrir Kára bróður sínum. Leikstjóri: Guðrún Ragnarsdóttir. Aðalhlutverk: Kristjana Thors, Stefán Örn Eggertsson og Brynhildur Guðjónsdóttir.