Kela finnst Ásta hafa fitnað mjög mikið að undanförnu. Hún tilkynnir honum að hún eigi von á barni. Þau tala um barneignir og afkvæmi ýmissa dýra. Lóa ókurteisa kemur til Ástu og Kela. Hún grætur vegna þess að krakkarnir í skólanum eru alltaf að stríða henni, þau segja að hún sé feit. Ásta og Keli ákveða að þau verði að hjálpa Lóu.