
Sögur - verðlaunahátíð barnanna 2023
Bein útsending frá skemmtilegustu verðlaunahátíð landsins í Hörpu, þar sem við verðlaunum það sem vel var gert í barnamenningu á Íslandi síðan á seinustu Söguhátíð. Sögur verða í forgrunni enda eru þær allt í kringum okkur. Þær eru í tónlistinni sem við hlustum á, settar á svið á leiksviðum landsins, þær eru til sýninga í kvikmyndahúsum og í sjónvarpinu og að sjálfsögðu í bókunum okkar. Sögur fyrir og eftir krakka verða verðlaunaðar og krakkarnir sjálfir ráða ferðinni, því þeir kjósa það sem þeim fannst bera af á seinasta ári. Kynnar eru Gunnar Hrafn Kristjánsson og Kolbrún María Másdóttir.