Músíktilraunir 2008
Upptaka frá lokakvöldi Músíktilrauna síðastliðið vor. Við sögu koma allar hljómsveitirnar sem tóku þátt á lokakvöldinu.
Einn ánægður tónleikagestur hafði þetta að segja um uppákomuna: „Músíktilraunir 2008 voru frábærar, leikgleðin og krafturinn skein úr hverju andliti og umgjörðin skildi fólk eftir agndofa. Unglingar og ungt fólk í blóma lífsins að brillera er sönn vítamínsprauta í skammdeginu. Músik er menning.
Ágúst Bogason tók viðtöl og Ólafur Páll Gunnarsson var kynnir á sviði. Eggert Gunnarsson sá um upptökustjórn, klippingu og dagskrárgerð.