
Lífsdansinn
En Corps
Frönsk kvikmynd frá 2022 í leikstjórn Cédrics Klapisch. Ballettdansari slasast alvarlega í miðri ballettsýningu og henni er sagt að hún muni líklega aldrei dansa framar. Staðráðin í að gefast ekki upp leitar hún á ný mið sem leiðir hana inn í heim nútímadansins. Aðalhlutverk: Marion Barbeau, Hofesh Shechter og Denis Podalydès.