Keyra bílinn minn
Doraibu mai kâ
Japönsk verðlaunamynd frá 2021 í leikstjórn Ryûsuke Hamaguchi. Frægur leikari og leikstjóri missir eiginkonu sína skyndilega. Hann lærir að takast á við missinn þegar honum býðst að leikstýra uppfærslu á Vanja frænda í Hiroshima. Myndin er byggð á samnefndri smásögu eftir japanska rithöfundinn Haruki Murakami. Aðalhlutverk: Hidetoshi Nishijima, Tôko Miura og Reika Kirishima. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.