
Innherjinn
The Insider
Bandarísk spennumynd frá 1999 í leikstjórn Michaels Mann. Myndin byggir á sönnum atburðum sem áttu sér stað árið 1994 þegar sýna átti fréttaskýringu um tóbaksiðnaðinn í þættinum 60 mínútur. Tóbaksfyrirtækin gera allt hvað þau geta til að koma í veg fyrir að þátturinn fari í loftið þar sem fyrrum starfsmaður tóbaksfyrirtækis, Jeffrey Wigand, uppljóstrar því að tóbaksframleiðendur hafi alltaf vitað af skaðsemi tóbaks og markvisst unnið að því að auka fíkn fólks í það. Aðalhlutverk: Russell Crowe, Al Pacino og Christopher Plummer.