
Hálfur Álfur
Íslensk heimildarmynd frá 2020. Vitavörðurinn Trausti tengist sínum innri álfi á meðan hann undirbýr hundrað ára afmælið eða eigin jarðarför. Á sama tíma hörfar eiginkona hans, Hulda, inn í heim horfinna ljóða með aðstoð stækkunarglersins síns. Í Hálfum Álfi er lífinu fagnað, þrátt fyrir þann veruleika sem bíður okkar allra. Leikstjóri: Jón Bjarki Magnússon.