
Guðríður hin víðförla
Íslensk heimildarmynd um Guðríði Þorbjarnardóttur sem var víðförlasta kona miðalda um miðja 11. öld. Hún var einn merkilegasti landkönnuður sögunnar sem sigldi átta sinnum yfir úfið Atlantshafið og kannaði veröldina allt frá norðurströndum Ameríku og vestur til Vatíkansins í Rómarborg. Leifur Eiríksson bjargaði henni, síðar mágkonu sinni, úr sjávarháska sem varð til þess að hann fékk viðurnefnið „heppni“. Leikstjóri: Anna Dís Ólafsdóttir.