
Georgia O'Keeffe: Móðir bandaríska módernismans
Georgia O'Keeffe: Painter of the Far Away
Frönsk heimildarmynd frá 2021 um listmálarann Georgiu O'Keeffe sem hefur verið kölluð móðir bandaríska módernismans. Hún var hvað þekktust fyrir málverk sín af blómum í yfirstærð, skýjakljúfum New York-borgar og mexíkósku landslagi. Leikstjóri: Evelyn Schels.